Fara í efni

Erindi og myndir frá málþingi

Málþing
Málþing

Nú er komið hér inn á vefinn erindi og myndir frá málþinginu sem Ferðamálastofa boðaði til í gær um uppbyggingu og skipulag ferðamannastaða. 

Málþingið var fjölsótt og vel heppnað. Það endaði á "Heimskaffi" þar sem unnið var í umræðuhópum. Niðurstöður þeirrar vinnu verða teknar saman og þær nýttar við gerð leiðbeiningarrits um uppbyggingu vandaðra ferðamannastaða, sem nú er í undirbúningi.

Hér að neðan má nálgast erindin sem flutt voru á málþinginu. Þau eru öll á PFD-formi nema erindi Audun Pettersen sem opnast í nýrri vefsíðu. Neðst er síðan tengill á nokkrar myndir sem teknar voru.

Hér að neðan má nálgast erindin sem flutt voru á málþinginu. Þau eru öll á PFD-formi nema erindi Audun Pettersen sem opnast í nýrri vefsíðu. Neðst er síðan tengill á nokkrar myndir sem teknar voru.

Erindi:

Audun Pettersen, sviðsstjóri,  Innovation Norway 
Uppbygging ferðamannastaða í Noregi " White Book" (erindið er því miður ekki lengur aðgengilegt) 
  
Edward Huijbens, forstöðumaður RMF 
Kortlagning á auðlindum ferðaþjónustunnar

Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt  
Menningarstefna í mannvirkjagerð og mikilvægi góðs undirbúnings
  
Bjarki Gunnar Halldórsson, arkitekt 
Sjávarþorpið Suðureyri - kortlagning og framtíðarsýn

Oddur Hermannsson, landslagsarkitekt  
Hönnun trappna og útsýnispalls við Seljalandsfoss og Skógafoss

Hreinn Óskarsson, skógarvörður 
Uppbygging útivistarsvæðis með aðgengi fyrir alla - Þjórsárdalsskógur
  
Kristín Þorleifsdóttir, landslagsarkitekt 
Viðmið fyrir skipulag vistvænna ferðamannastaða

Egill Guðmundsson, arkitekt  
Vistvæn þjónustuhús
  
Anna G. Sverrisdóttir, ráðgjafi 
Framsýni og fagmennska, langtímahugsun skilar arði

Borghildur Sölvey Sturludóttir, arkitekt 
Vandaðir ferðamannastaðir- hvað þarf að gera?

Sævar Kristinsson, ráðgjafi
Kynning á "Heimskaffi"