Fara í efni

Engin framúrkeyrsla hjá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar síðustu daga um framúrkeyrslu ríkisstofnanna á fyrri hluta ársins vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið taka skýrt fram að útgjöld Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða eru innan fjárheimilda. 

Um miðjan maí samþykkti ríkisstjórnin að veita ríflega 380 milljónum króna til uppbyggingar og verndaraðgerða á ferðamannastöðum á þessu sumri. Um var að ræða sérstaka úthlutun vegna verkefna sem talin voru sérstaklega brýn vegna verndunar náttúru og öryggissjónarmiða.

Í nýútkominni skýrslu um fjárreiður ríkissjóðs á fyrri hluta ársins er ekki tekið tillit til ofangreindrar aukafjárveitingar né heldur þeirra tæplega 200 milljóna sem sjóðurinn átti óráðstafaðar frá fyrra ári vegna verkefna sem búið er að úthluta styrkjum til og greiddir eru út eftir framvindu verkefnanna.