Efni frá Ferðaþjónustuvikunni 2026
Á vef Ferðaþjónustuvikunnar er nú hægt að nálgast efni öllum viðburðum hennar. Um er að ræða fyrirlestra, myndbönd, upptökur og fjölmargar ljósmyndir.
Ferðaþjónustuvikan var haldin í 3. sinn 13.-15. janúar síðastliðinn en að henni standa Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Ferðamálastofa og Íslandsstofa. Fleiri aðilar áttu einnig aðkomu, s.s. KPMG, Samtök um söguferðaþjónustu og Godo.
Auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu
Markmið Ferðaþjónustuvikunnar er að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá sem nær yfir þrjá daga. Með tengingu við ferðasýninguna Mannamót, sem Markaðsstofur landshlutanna á landsbyggðinni standa fyrir, gefst kjörið tækifæri til að þétta raðirnar og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá sem fleiri af þeim sem eiga lengra að sækja geta nýtt sér, heldur en þegar viðburðum er dreift á lengri tíma.
Þegar er farið að huga að undirbúningi næstu Ferðaþjónustuviku, sem haldin verður í janúar 2027.