Fara í efni

Vilt þú hafa áhrif á framtíð íslenskrar ferðaþjónustu?

 
Nú gefst áhugasömum aðilum kjörið tækifæri til að hafa áhrif á framtíð íslenskrar ferðaþjónustu. Boðið er á vinnustofu hagaðila íslenskrar ferðaþjónustu um málefni heilsu-, veitinga- og hvataferðaþjónustu.

Boðið er uppá mismunandi fundarform:
 
  • Staðfund þann 23. ágúst í Borgartúni 35, 1. hæð milli kl. 8:30-10:30
  • Teams fund þann 25. ágúst milli kl. 8:30-10:30.

    Markmið fundanna er að draga fram þær aðgerðir tengdar heilsu-, veitinga- og hvataferðaþjónustu sem hagaðilar telja hvað brýnast að ráðist verði í á næstu árum til að tryggja sjálfbæra ferðaþjónustu á Íslandi til framtíðar.