Fara í efni

Viðbótarúthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Mynd: Sér yfir Akureyri.
Mynd: Sér yfir Akureyri.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur ráðstafað 200 milljón kr. viðbótarframlagi til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða á árinu 2020 með hliðsjón af vinnu stjórnar sjóðsins frá úthlutun ársins 2020 í mars síðastliðinn.

Með fjárveitingunni, sem er hluti af sérstöku tímabundnu fjárfestingarátaki stjórnvalda vegna COVID-19 faraldursins, verður unnt að hraða uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum um allt land sem stuðla að öryggi ferðamanna og verndun náttúru landsins.

15 verkefni um allt land

Alls hljóta 15 verkefni, til viðbótar við þau 33 verkefni sem tilkynnt var að fengju styrk úr sjóðnum í mars sl., brautargengi. Um er að ræða verkefni víðsvegar um landið sem sóttu um í sjóðinn við síðustu úthlutun en náðu ekki fram að ganga. Stærstur hluti úthlutunarinnar, eða 43%, rennur til verkefna á Norðurlandi eystra. Þá renna 28% til verkefna á Suðurlandi. Ferðamálastofa mun á næstunni hafa samband við styrkþega og gera við þá samninga um framkvæmd verkefnanna.

Upplýsingar um verkefni

Upplýsingar um þau verkefni sem fá úthlutun nú ná sjá hér að neðan en í vefsjá Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða má kynna sér allar úthlutanir sjóðsins frá upphafi á gagnvirku korti.

Umsækjandi Upplýsingar um verkefnið Landsvæði Styrkupphæð
Hjarðarhagi ehf. Torfhúsin í Hjarðarhaga: Bætt
aðgengi fyrir ferðamenn.
Austurland 1.243.100
Skógræktarfélag Reykjavíkur Tengileið Mógilsá -
Kollafjarðará
Höfuðborgarsvæðið 17.000.000
Akureyrarbær Stígagerð og brúun í
fólkvangnum á Glerárdal frá
bifreiðastæði að Lamba (skála
ferðafélags Akureyrar)
Norðurland eystra 21.485.000
Langanesbyggð Hafnartangi á Bakkafirði -
áningarstaður við ysta haf
Norðurland eystra 30.000.000
Norðurþing Bifröst við Heimskautsgerði -
velkomin
Norðurland eystra 35.000.000
Sveitarfélagið Hornafjörður Göngu- og hjólastígur milli
Svínafells og Skaftafells
Suðurland 12.000.000
Vestmannaeyjabær Markviss uppbygging
gönguleiðar með vesturströnd
Heimaeyjar
Suðurland 6.180.000
Vestmannaeyjabær Lagfæringar á gönguleið í
Dalfjalli
Suðurland 13.000.000
Fannborg ehf Áningarstaður við Gýgjarfoss Suðurland 2.412.620
Katla Jarðvangur ses. Aukið öryggi við útsýnisstopp
hjá Eyjafjallajökli
Suðurland 3.512.800
Skálholt Þorláksleið,
gönguleiðaverkefni
Suðurland 19.000.000
Suðurnesjabær Aðkomusvæði við
Skagagarðinn, nýr
ferðamannastaður
Suðurnes 11.680.000
Suðurnesjabær Göngustígur frá Kirkju að höfn
í Garði
Suðurnes 3.040.000
Eyja-og Miklaholtshreppur Útisvæði við Gestastofu
Snæfellsness
Vesturland 7.607.000
Dalabyggð Minningarreitur um
sagnaritarann Sturlu
Þórðarson
Vesturland 16.158.307