Fara í efni

1,5 milljarði veitt til innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum

Ráðherrarnir tilkynna um úthlutanir í dag.
Ráðherrarnir tilkynna um úthlutanir í dag.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerðu í dag grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2020. Samtals er nú úthlutað rúmum 1,5 milljarði króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og Framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem gerir kleift að halda áfram því mikilvæga verkefni að byggja upp innviði á ferðamannastöðum.

Verulegur árangur náðst

Frá síðustu úthlutun hefur mikill árangur náðst í að auka og bæta við innviði um land allt og þannig getu þeirra svæða sem um ræðir til að taka við ferðmönnum. Þar má nefna áframhaldandi uppbyggingu gönguleiða, útsýnispalla og bílastæða innan Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls, viðgerðir á hleðslum við Snorralaug í Reykholti og smíði á stigum og pöllum við Stuðlagil, sem og við Hornbjargsvita til að bæta öryggi ferðamanna og vernda náttúru auk fjölda annarra verkefna.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða 2020

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða, sem er í vörslu Ferðamálastofu, veitir styrki til 33 verkefna um allt land árið 2020 sem nema samtals 501,5 milljónum króna. Alls bárust sjóðnum 134 umsóknir að þessu sinni með styrkbeiðnum upp á 2,3 milljarða.

Hæstu styrkirnir nú eru styrkir til byggingar útsýnispalls á Bolafjalli í Bolungarvíkurkaupstað, áframhald uppbyggingar við Stuðlagil beggja vegna árinnar og bætt fráveitumál í Hrafntinnuskeri. Önnur verkefni sem fá hærra en 15 milljón króna styrki eru bætt salernisaðstaða við Aldeyjarfoss og bygging skýla til náttúruskoðunar við fuglastíg á Norðausturlandi.

Verkefnaáætlun Landsáætlunar 2020-22

Gert er ráð fyrir um þriggja milljarða framlagi til þriggja ára, sem rennur til verkefnaáætlunar Landsáætlunar um uppbyggingu innviða sem gildir fyrir árin 2020-2022. Sem fyrr er áhersla lögð á að um sé að ræða heildstæða nálgun í gegnum svæðisheildir en einnig á annars konar verkefni s.s. til að auka fagþekkingu, bæta hönnun og samræmingu. Alls hafa verið skilgreindir 119 ferðamannastaðir, ferðamannaleiðir og ferðamannasvæði, þar sem aðgerðir hafa þegar hafist fyrir tilstuðlan landsáætlunar eða eru fyrirhugaðar til og með ársins 2022.

Þá hefur undanfarin ár verið lögð aukin áhersla á að efla heilsárs- og árstíðabundna landvörslu enda gegna landverðir mikilvægu hlutverki fyrir verndun náttúru, svo og fræðslu og upplifun ferðamanna á friðlýstum svæðum.

Meira efni frá fundinum