Menningarlandið 2009
Menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti, síðar iðnaðarráðuneyti, hafa frá árinu 2001 gert menningarsamninga við sjö samtök sveitarfélaga á Íslandi. Landið allt, utan höfuðborgarsvæðisins, er þannig tengt saman með menningasamningum og starfi sjö menningarráða. Samningarnir fela í sér markvissan stuðning ríkisins við menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu gegn mótframlagi sveitarfélaga og einkaaðila í héraði.
Ráðstefna 11.-12. maí
Nú er tímabært að meta reynsluna af menningarsamningunum og huga að nýrri sókn í nýsköpun og nýtingu menningararfs okkar. Af því tilefni boða menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við menningarráð landsbyggðarinnar, til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí næstkomandi. Allir sem á einn eða annan hátt tengjast menningarstarfi eða ferðamálaum eru hvattur til að mæta á ráðstefnuna enda verða þær umræður sem þar fara fram grundvöllur að frekara samstarfi ríksi og sveitarfélaga um menningu og menningartengda ferðaþjónustu.
Dagskrá:
Mánudagur 11. maí:
| 12:00 | Trommusveitin í Stykkishólmi býður gesti velkomna |
| Ávarp ráðherra | |
| Landshlutapóstur frá Menningarráði Vesturlands og Vestfjarða | |
| 12:40 | Dögg Mósesdóttir: Framtíðarfjárfestingin menning |
| 13:00 | Leikatriði frá Ungmennafélaginu Íslendingi í boði Menningarráðs Vesturlands |
| - Stutt hlé ? | |
| 13:30 | Elísabet Indra Ragnarsdóttir: ?Við verðum að læra að sjá meira, heyra meira, skynja meira ...? |
| 13:50 | Hjálmar H. Ragnars: Skapandi kraftur |
| 14:10 | Jón Hrólfur Sigurjónsson: ?Hér er hægt að fá brjálaðar hugmyndir og láta þær gerast!? |
| 14:30 | Spurningar og svör um menningaruppeldi og listfræðslu |
| - Stutt hlé ? | |
| 15:00 | Tónlistarperlur: Alexandra Chernyshova sópran, Þórhallur Barðason barinton og Tom R. Higgerson píanóleikari flytja. Tónlistaratriði í boði Menningarráðs Norðurlands vestra |
| 15:15 | Landshlutapóstur frá Menningarráði Norðurlands vestra |
| 15:30 | Þór Sigfússon: Um þýðingu lista og menningar í íslensku athafnalífi |
| - Stutt hlé ? | |
| 16:10 | Menningarlandið 2009: Höfum við gengið til góðs: Guðrún Helgadóttir og Signý Ormarsdóttir flytja hugleiðingu um reynslu og árangur af menningarsamningum ríkis og sveitarstjórna. Að erindum þeirra loknum taka þær þátt í pallborði ásamt Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra á Dalvík og fulltrúum frá iðnaðar- og menntamála-ráðuneytum. |
| 17:15 | Sameiginleg upplifunarferð með ævintýrasiglingu. Sturla Böðvarsson segir frá sögu og skipulagi gamla miðbæjarins í Stykkishólmi og gengið verður fylktu liði gegnum gamla bæinn, niður á höfn og um borð í bát sem siglir með gesti um Breiðafjörð. Boðið verður upp á ferskt sjávarfang um borð. |
| 19:45 | Fordrykkur í boði Stykkishólmskaupsbæjar í Vatnasafninu. |
| 21:00 | Kvöldverður með næringu fyrir líkama og sál. Þjóðlagasveitin frá Akranesi, Stefán Benedikt Vilhelmsson leikari, Þórunn Gréta Sigurðardóttir píanóleikari og Kómedíuleikhúsið frá Ísafirði verða meðal skemmtiatriða. |
Þriðjudagur 12. maí:
| 09:30 | Svanhildur Konráðsdóttir: Menning - mikilvægur drifkraftur í ferðaþjónustu |
| 09:50 | Landshlutapóstur frá Menningarráði Eyþings |
| 10:05 | Stuttmyndafestivalið Stulli ? verðlaunamynd og bjartasta vonin 2008 í boði Menningarráðs Eyþings |
| 10:15 | Dansgjörningur í boði Menningarráðs Eyþings: Anna Richardsdóttir |
| 10:30 | Landshlutapóstur frá Menningarráði Suðurlands |
| 10:45 | Þjóðlagasveitin Korka í boði Menningarráðs Suðurlands |
| - Stutt hlé ? | |
| 11:20 | Sigríður Sigurjónsdóttir: Stefnumót Bænda og hönnuða |
| 11:40 | Sólveig Ólafsdóttir: Meyjarhumar og hákarl |
| 12:00 | Matarhlé |
| 13:00 | Viðar Hreinsson: Menningararfur og sjálfsmynd Íslendinga |
| 13:20 | Hjálmar Sveinsson: Skipulag er menning |
| 13:40 | Umræður |
| - Stutt hlé ? | |
| 14:20 | Landshlutapóstur frá Menningarráði Austurlands |
| 14:35 | Brynhildur Guðjónsdóttir: Í fáum orðum |
| 15:00 | Jón Jónsson: Rótað í framtíðinni |
| 15:20 | Ávarp ráðherra |
| 15:30 | Lúðrasveit Stykkishólms og Akraness kveður gesti |
Nokkrar hagnýtar upplýsingar:
Ráðstefnan verður haldin á Hótel Stykkishólmi 11.-12. maí 2009.
Ráðstefnugjald er 9000 kr. Innifalið er hádegisverður, kvöldverður (án drykkja), kaffiveitingar og kynnisferð.
Þátttakendur greiða sjálfir fyrir gistingu og panta hana sérstaklega. Hótel Stykkishólmur býður upp á sérstakt tilboðsverð fyrir ráðstefnugesti. Gisting í eina nótt fyrir manninn kostar 5000 kr. í tveggja manna herbergi og 6000 kr. í eins manns herbergi. Bókanir eru í gegnum netfangið hotel@hringhotels.is
Skráning
Skráning á ráðstefnuna fer fram hér á vefnum. Skráning á ráðstefnina Menningarlandið 2009