Fara í efni

Menningarlandið 2009

Stykkisholmur
Stykkisholmur

Menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti, síðar iðnaðarráðuneyti, hafa frá árinu 2001 gert menningarsamninga við sjö samtök sveitarfélaga á Íslandi. Landið allt, utan höfuðborgarsvæðisins, er þannig tengt saman með menningasamningum og starfi sjö menningarráða. Samningarnir fela í sér markvissan stuðning ríkisins við menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu gegn mótframlagi sveitarfélaga og einkaaðila í héraði.

Ráðstefna 11.-12. maí
Nú er tímabært að meta reynsluna af menningarsamningunum og huga að nýrri sókn í nýsköpun og nýtingu menningararfs okkar. Af því tilefni boða menntamálaráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga, í samstarfi við menningarráð landsbyggðarinnar, til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí næstkomandi. Allir sem á einn eða annan hátt tengjast menningarstarfi eða ferðamálaum eru hvattur til að mæta á ráðstefnuna enda verða þær umræður sem þar fara fram grundvöllur að frekara samstarfi ríksi og sveitarfélaga um menningu og menningartengda ferðaþjónustu.

Dagskrá:

Mánudagur 11. maí:

12:00 Trommusveitin í Stykkishólmi býður gesti velkomna
Ávarp ráðherra
Landshlutapóstur frá Menningarráði Vesturlands og Vestfjarða
12:40 Dögg Mósesdóttir: Framtíðarfjárfestingin menning
13:00  Leikatriði frá Ungmennafélaginu Íslendingi í boði Menningarráðs Vesturlands
- Stutt hlé ?
13:30 Elísabet Indra Ragnarsdóttir: ?Við verðum að læra að sjá meira, heyra meira, skynja meira ...?
13:50 Hjálmar H. Ragnars: Skapandi kraftur
14:10 Jón Hrólfur Sigurjónsson: ?Hér er hægt að fá brjálaðar hugmyndir og láta þær gerast!?
14:30 Spurningar og svör um menningaruppeldi og listfræðslu
- Stutt hlé ?
15:00 Tónlistarperlur: Alexandra Chernyshova sópran, Þórhallur Barðason barinton og Tom R. Higgerson píanóleikari flytja.  Tónlistaratriði í boði Menningarráðs Norðurlands vestra
15:15 Landshlutapóstur frá Menningarráði Norðurlands vestra
15:30 Þór Sigfússon: Um þýðingu lista og menningar í íslensku athafnalífi
- Stutt hlé ?
16:10 Menningarlandið 2009: Höfum við gengið til góðs: Guðrún Helgadóttir og Signý Ormarsdóttir flytja hugleiðingu um reynslu og árangur af menningarsamningum ríkis og sveitarstjórna. Að erindum þeirra loknum taka þær þátt í pallborði ásamt Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra á Dalvík og fulltrúum frá iðnaðar- og menntamála-ráðuneytum. 
17:15 Sameiginleg upplifunarferð með ævintýrasiglingu. Sturla Böðvarsson segir frá sögu og skipulagi gamla miðbæjarins í Stykkishólmi og gengið verður fylktu liði gegnum gamla bæinn, niður á höfn og um borð í bát sem siglir með gesti um Breiðafjörð. Boðið verður upp á ferskt sjávarfang um borð. 
19:45  Fordrykkur í boði Stykkishólmskaupsbæjar í Vatnasafninu.
21:00 Kvöldverður með næringu fyrir líkama og sál. Þjóðlagasveitin frá Akranesi, Stefán Benedikt Vilhelmsson leikari, Þórunn Gréta Sigurðardóttir píanóleikari  og  Kómedíuleikhúsið frá Ísafirði verða meðal skemmtiatriða.


Þriðjudagur 12. maí:

09:30 Svanhildur Konráðsdóttir:  Menning - mikilvægur drifkraftur í ferðaþjónustu
09:50  Landshlutapóstur frá Menningarráði Eyþings
10:05 Stuttmyndafestivalið Stulli ? verðlaunamynd og bjartasta vonin 2008 í boði Menningarráðs Eyþings
10:15 Dansgjörningur í boði Menningarráðs Eyþings: Anna Richardsdóttir
10:30 Landshlutapóstur frá Menningarráði Suðurlands
10:45 Þjóðlagasveitin Korka í boði Menningarráðs Suðurlands
- Stutt hlé ?
11:20 Sigríður Sigurjónsdóttir: Stefnumót Bænda og hönnuða
11:40 Sólveig Ólafsdóttir: Meyjarhumar og hákarl
12:00 Matarhlé
13:00 Viðar Hreinsson: Menningararfur og sjálfsmynd Íslendinga
13:20 Hjálmar Sveinsson: Skipulag er menning
13:40 Umræður
- Stutt hlé ?
14:20 Landshlutapóstur frá Menningarráði Austurlands
14:35 Brynhildur Guðjónsdóttir: Í fáum orðum
15:00 Jón Jónsson: Rótað í framtíðinni
15:20 Ávarp ráðherra
15:30 Lúðrasveit Stykkishólms og Akraness kveður gesti

Nokkrar hagnýtar upplýsingar:

Ráðstefnan verður haldin á Hótel Stykkishólmi 11.-12. maí 2009.

Ráðstefnugjald er 9000 kr. Innifalið er hádegisverður, kvöldverður (án drykkja), kaffiveitingar og kynnisferð.

Þátttakendur greiða sjálfir fyrir gistingu og panta hana sérstaklega. Hótel Stykkishólmur býður upp á sérstakt  tilboðsverð fyrir ráðstefnugesti. Gisting í eina nótt fyrir manninn kostar  5000 kr. í tveggja manna herbergi og 6000 kr. í eins manns herbergi. Bókanir eru í gegnum netfangið hotel@hringhotels.is

Skráning
Skráning á ráðstefnuna fer fram hér á vefnum. Skráning á ráðstefnina Menningarlandið 2009