Fara í efni

5.800 brottfarir erlendra farþega í apríl

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 5.800 í nýliðnum aprílmánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða sex sinum fleiri en í apríl 2020, þegar brottfarir voru tæplega eitt þúsund. Frá áramótum hafa tæplega átján þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er 94,7% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega um 334 þúsund.

Langflestar brottfarir í apríl má rekja til Pólverja eða um fjórðung (25,8%). Þar á eftir fylgja brottfarir Þjóðverja (12,5% af heild) og Bandaríkjamanna (8,9% af heild). Samanburður er ekki tiltækur milli ára (2020-2021) þar sem útaksmælingar voru ekki framkvæmdar eftir þjóðerni í apríl 2020.

Brottfarir Íslendinga

Brottfarir Íslendinga í apríl voru um þrjú þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um 300 talsins. Brottfarir Íslendinga frá áramótum eru um 14.500 eða 83,7% færri en á sama tímabili í fyrra.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má í töflunni hér að neðan og frekari upplýsingar sjá undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.