Fara í efni

4.300 brottfarir erlendra farþega í janúar

Mynd: -HA
Mynd: -HA

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 4.300 í nýliðnum janúarmánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða 96,4% færri en í janúar 2020, þegar brottfarir voru tæplega 121 þúsund talsins.

Langflestar brottfarir í janúar má rekja til Pólverja eða ríflega fjórðung (28%). Um er að ræða fimmta mánuðurinn í röð þar sem fækkunin nemur yfir 90% milli ára.

Brottfarir Íslendinga í janúar voru um sex þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um 38 þúsund talsins. Fækkunin nemur 84% milli ára.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.

tafla janúar 21