Fara í efni

18,5% fækkun milli ára í apríl

18,5% fækkun milli ára í apríl

Brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 120 þúsund í nýliðnum apríl eða um 27 þúsund færri en í apríl árið 2018, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkun milli ára nemur 18,5%.

Bandaríkjamenn og Bretar voru fjölmennastir í apríl eða 35% brottfara en Bandaríkjamönnum fækkaði um 27% milli ára og Bretum um 31,5%.

Frá áramótum hafa 578 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 7,9% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.

 


fjölmennustu þjóðerni apríl  2019Fjölmennustu þjóðernin

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í apríl í ár tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta, sem fyrr segir. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir, um 26 þúsund talsins, og brottfarir Breta komu þar á eftir en þær mældust um 15.600. Samtals voru brottfarir þessara tveggja þjóða 35% af heildarbrottförum.

Þjóðverjar voru þriðju í röðinni hvað fjölda brottfara varðar í apríl en þeir voru 7.600 talsins (6,3% af heild) og fækkaði þeim um 4,8% milli ára. Brottfarir Pólverja voru í fjórða sæti, um 7.300 talsins (6,1% af heild) og voru þeir 1,4% fleiri en árinu áður.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Frakka (4,1% af heild), Dana (3,6% af heild), Kanadamanna (3,4% af heild), Norðmanna (3,2% af heild), Spánverja (3,1% af heild) og Svía (2,9% af heild).

 

Ferðir Íslendinga utan

Um 61 þúsund Íslendingar fóru utan í apríl í ár eða 15,4% fleiri en í apríl 2018. Frá áramótum hafa 185 þúsund Íslendingar farið utan eða 1,8% færri en á sama tímabili í fyrra.

*Nánari upplýsingar

Talning Ferðamálastofu og Isavia er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu áður en komið er inn á brottfararsvæði og tölurnar ber að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Talningarnar ná yfir alla sem fara í gegnum hefðbundna öryggisleit.
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnnum sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega benda til að um 93% brottfararfarþega yfir vetrartímann séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og gisti eina eða fleiri nætur. Þeir sem koma inn í landið án þess apð gista hafa mælst um 2% sjálftengifarþegar hafa mælst á bilinu 2-4% og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma á bilinu 1,4-3,4%. Sjá nánar
Ferðamálastofa áréttar að fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun í komum ferðamanna til landsins. Til að álykta um breytingar á umsvifum í ferðaþjónustu þarf að líta til fleiri mælikvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferðamanna.
Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Ferðamenn apríl 2019