Fara í efni

18,4% fækkun í október

Uppfært:
Vegna tæknilegra örðugleika kom í ljós að leiðrétta þurfti áætlaða hlutfallsskiptingu milli þjóðerna í farþegatalningu á Keflavíkurflugvelli í október og nóvember. Heildarfjöldi brottfararfarþega er óbreyttur og breytingin hefur lítil áhrif á heildarmyndina. Tölur sem fram koma í texta hér á eftir eru ekki réttar í öllum tilvikum en réttar tölur koma fram í excel-skjölum undir
Fjöldi ferðamanna/Ferðamenn um Keflavíkurflugvöll


Brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 163 þúsund í októbermánuði eða um 36 þúsund færri en í október árið 2018. Fækkun milli ára nemur 18,4%.

Samkvæmt niðurstöðum talninga Ferðamálastofu á skiptingu þjóðerna munar mest um fækkun Bandaríkjamanna, en brottförum þeirra fækkaði um 25 þúsund frá því í október 2018 eða um 42% milli ára.

Fækkun hefur verið alla mánuði frá áramótum. Í janúar nam hún 5,8%, í febrúar 6,9%, í mars 1,7%, í apríl 18,5%, í maí 23,6%, í júní 16,7%, í júlí 17%, 13,5% í ágúst og 20,7% í september.

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í október eða um fimmtungur brottfara en þar á eftir komu Bretar eða um 12,6% af heild.

Frá áramótum hafa um 1,7 milljónir erlendra farþega farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 14,7% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.


Fjölmennustu þjóðernin

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í október tilkomnar vegna Bandaríkjamanna sem fyrr segir. Bretar voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru um 20.500 talsins eða 16,9% færri en í október árið áður. Í þriðja sæti voru brottfarir Kínverja, tæp 10.800 talsins og fjölgaði þeim um 24,3% milli ára.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Pólverja (6,4% af heild), Frakka (5,5% af heild), Þjóðverja (5% af heild), Spánverja (3,7% af heild), Dana (3,3% af heild), Kanadamanna (2,9% af heild) og Hollendinga (2,3% af heild).

Ferðir Íslendinga utan

Um 57 þúsund Íslendingar fóru utan í október í ár eða 11% færri en í október 2018. Frá áramótum hafa um 522.600 Íslendingar farið utan eða 7,8% færri en á sama tímabili í fyrra.

Nánari upplýsingar*

Fjöldi ferðamanna eftir þjóðerni er metinn út frá kerfisbundnu úrtaki sem tekið er meðal farþega áður en komið er inn á brottfararsvæði Keflavíkurflugvallar. Niðurstöður eru hugsaðar sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum og ber að skoða þær með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér.
Gagnasöfnun fer fram alla mánuði ársins þar sem farþegar á leið úr landi eru taldir eftir helstu þjóðernum. Gera má gera ráð fyrir að skekkja í hlutfalli hvers þjóðernis sé að meðaltali innan við +/- 0,3% í mánuði. 
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnnum sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega benda til að um 93% brottfararfarþega yfir vetrartímann séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og gisti eina eða fleiri nætur. Þeir sem koma inn í landið án þess að gista hafa mælst um 2% sjálftengifarþegar hafa mælst á bilinu 2-4% og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma á bilinu 1,4-3,4%Sjá nánar
Ferðamálastofa áréttar að fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun í komum ferðamanna til landsins. Til að álykta um breytingar á umsvifum í ferðaþjónustu þarf að líta til fleiri mælikvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferðamanna.
Nánari skiptingu á milli þjóðerna undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.