Fara í efni

12,7% fækkun í nóvember - uppfært

12,7% fækkun í nóvember - uppfært

Vegna tæknilegra örðugleika kom í ljós að leiðrétta þarf áætlaða hlutfallsskiptingu milli þjóðerna í farþegatalningu á Keflavíkurflugvelli í október og nóvember. Heildarfjöldi brottfararfarþega er óbreyttur og breytingin hefur lítil áhrif á heildarmyndina.

Fækkun að stærstu leyti Bandaríkjamenn

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru rúmlega 131 þúsund nóvembermánuði. Fækkunin var eins og áður kom fram að stærstum hluta tilkomin vegna Bandaríkjamanna, eða 13.659 af samtals 19.004 farþegum. Bretar voru fjölmennastir, 32 þúsund talsins og fækkaði um 6,6%, sem er heldur minna en áður var talið.

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Nánari upplýsingar*

Fjöldi ferðamanna eftir þjóðerni er metinn út frá kerfisbundnu úrtaki sem tekið er meðal farþega áður en komið er inn á brottfararsvæði Keflavíkurflugvallar. Niðurstöður eru hugsaðar sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum og ber að skoða þær með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér.
Gagnasöfnun fer fram alla mánuði ársins þar sem farþegar á leið úr landi eru taldir eftir helstu þjóðernum. Gera má gera ráð fyrir að skekkja í hlutfalli hvers þjóðernis sé að meðaltali innan við +/- 0,3% í mánuði. 
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnnum sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega benda til að um 93% brottfararfarþega yfir vetrartímann séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og gisti eina eða fleiri nætur. Þeir sem koma inn í landið án þess að gista hafa mælst um 2% sjálftengifarþegar hafa mælst á bilinu 2-4% og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma á bilinu 1,4-3,4%. Sjá nánar
Ferðamálastofa áréttar að fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun í komum ferðamanna til landsins. Til að álykta um breytingar á umsvifum í ferðaþjónustu þarf að líta til fleiri mælikvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferðamanna.