Fara í efni

110 þúsund brottfarir erlendra farþega í júlí

110 þúsund brottfarir erlendra farþega í júlí

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 110 þúsund í nýliðnum júlímánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða meira en tvöfalt fleiri en í júlí 2020. Horfa þarf allt til febrúarmánaðar 2020 til að sjá álíka fjölda brottfara erlendra farþega í einum mánuði.

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í júlí eða tæplega helmingur brottfara.

Frá áramótum hafa um 184 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er um 52% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega tæplega 387 þúsund.

 

Langflestar brottfarir í júlí má rekja til Bandaríkjamanna eða tæplega helming (46,6%). Þar á eftir fylgja brottfarir Pólverja (10,2% af heild), Þjóðverja (7,9% af heild), Breta (5,2% af heild) og Frakka (3,6% af heild). Samtals voru brottfarir fimm stærstu þjóðerna 73,5%.

Brottfarir Íslendinga

Brottfarir Íslendinga í júlí voru um 31 þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um 13 þúsund. Brottfarir Íslendinga hafa líkt og brottfarir erlendra farþega ekki mælst svo margar frá því í febrúar 2020 en þá voru þær um 34 þúsund talsins.

Brottfarir Íslendinga frá áramótum eru um 63.500 eða 41,3% færri en á sama tímabili í fyrra.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má í töflunni hér að neðan og frekari upplýsingar sjá undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.