Almyrkvinn - Mikilvægar upplýsingar til ferðafólks
Nú styttist í almyrkvann 12. ágúst og ljóst er að mikill fjöldi fólks mun leggja leið sína á almyrkvasvæðin til að upplifa þennan atburð.
Til að stuðla að því að dagurinn gangi sem best höfum við tekið saman einblöðung á ensku með helstu upplýsingum til ferðafólks.
Við viljum biðja ykkur um að hjálpa okkur að koma þessum upplýsingum á framfæri við gesti fram að almyrkvanum. Einblöðunginn má til dæmis prenta út og hafa sýnilegan í móttöku, við upplýsingaborð eða á öðrum áberandi stað þar sem gestir sjá hann.
Með því að hjálpast að við að koma skýrum og samræmdum upplýsingum á framfæri getum við stuðlað að öruggara ferðalagi og vonandi sem bestri upplifun fyrir alla.
Kærar þakkir fyrir að hjálpa okkur að koma upplýsingunum áfram.
Hér að neðan eru hlekkir á einblöðunginn í tveimur útgáfum:
- Til útprentunar á hefðbundinn skrifstofuprentara:
https://www.ferdamalastofa.is/static/files/oryggismal/myr-a4-officeprint.pdf
- Til prentunar hjá prentstofu:
https://www.ferdamalastofa.is/static/files/oryggismal/myr-a4-professionalprint.pdf
Áreiðanlegar upplýsingar í tengslum við almyrkvann
- Upplýsingasíða stjórnvalda
- Ferðamálastofa
- VisitIceland.com
- Markaðsstofa Vestfjarða
- Markaðsstofa Vesturlands
- Markaðsstofa Reykjaness
- Markaðsstofa Höfuðborgarsvæðisins
- Austurbrú / Markaðsstofa Austurlands
- Sólmyrkvasíða Sævars Helga Bragasonar stjörnufræðings
- Upplýsingasíða Safetravel varðandi almyrkvann
- Vegagerðin