Fara í efni

Almyrkvinn 12. ágúst - Hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar fyrir ferðaþjónustuaðila og gesti

Almyrkvinn 12. ágúst - Hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar fyrir ferðaþjónustuaðila og gesti

Ferðamálastofa hefur gefið út hagnýtar upplýsingar og leiðbeiningar fyrir ferðaþjónustuaðila og gesti vegna almyrkva á sólu sem verður sýnilegur frá Íslandi þann 12. ágúst 2026. Leiðbeiningunum er ætlað að styðja við undirbúning og framkvæmd dagsins með áherslu á öryggi gesta, samræmda upplýsingagjöf, ábyrga nýtingu innviða og góða umgengni um náttúruna.

 

Veruleg áhrif á innviði líkleg

Almyrkvaslóðin mun liggja yfir Vestfirði, Vesturland, Höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga og búast má við mikilli aðsókn bæði innlendra og erlendra gesta. Líklegt verður að teljast að ferðamannafjöldinn veruleg áhrif á umferð, bílastæði, gistirými og aðra innviði á þeim svæðum sem verða innan slóðarinnar.

 

Mikilvægi góðrar samvinnu 

Í leiðbeiningunum er lögð áhersla á mikilvægi góðrar samvinnu milli ferðaþjónustuaðila, sveitarfélaga og viðbragðsaðila til að tryggja að dagurinn verði öruggur og ánægjulegur fyrir alla. Markmiðið er að skapa jákvæða upplifun fyrir bæði íbúa og gesti á sama tíma og gætt verði að öryggi fólks og verndun náttúrunnar. Sértaklega er vísað á aðrar mikilvægar upplýsingasíður vegna almyrkvans.

 

Ferðaþjónustuaðilar undirbúi starfsfólk sitt vel 

Ferðamálastofa hvetur ferðaþjónustuaðila til að undirbúa starfsfólk sitt vel og tryggja að gestir fái skýrar upplýsingar um aðstæður, umferð og öryggi. Þá er sérstaklega bent á mikilvægi þess að nota viðurkenndan hlífðarbúnað við að horfa á sólina, enda getur það valdið alvarlegum augnskaða að horfa beint á sólmyrkva án viðeigandi varna.

 

Ábyrg umgengni í náttúrunni

Einnig er lögð áhersla á ábyrga umgengni í náttúrunni. Gestir eru hvattir til að fylgja merktum leiðum, virða lokanir og ganga vel um vinsæla áningarstaði þar sem búast má við miklum fjölda fólks.

 

Uppfært eftir því sem nær dregur

Leiðbeiningarnar eru lifandi gögn sem verði uppfærð eftir því sem nær dregur almyrkvanum og nýjar upplýsingar liggja fyrir. Vonast er til að með samstilltu átaki verði almyrkvadagurinn bæði öruggur og eftirminnilegur fyrir alla sem upplifa þennan sjaldgæfa náttúruviðburð á Íslandi.

 

 

 Mynd með frétt: Jongsun Lee á Unsplash