Fara í efni

75 þúsund brottfarir erlendra farþega í nóvember

Mynd: Markaðsstofa Norðurlands
Mynd: Markaðsstofa Norðurlands

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 75 þúsund í nýliðnum nóvembermánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Horfa þarf allt til ársins 2015 til að sjá álíka fjölda brottfara erlendra farþega í nóvembermánuði.

Bandaríkjamenn og Bretar voru fjölmennastir eða þriðjungur.

Frá áramótum hafa um 623 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er 32,6% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega um 470 þúsund. Borið saman við 2019 er fækkunin 66%.

 

Stærstu þjóðernin

Langflestar brottfarir í nóvember má rekja til Bandaríkjamanna og Breta eða þriðjung (33,5%). Þjóðverjar voru í þriðja sæti en brottfarir þeirra voru um 7.900 talsins eða 10,4% af heild. Í fjórða sæti voru brottfarir Frakka, um 9,3% af heild og í því fimmta brottfarir Pólverja, um 7,2% af heild.

Þar á eftir fylgdu brottfarir Ítala (4,1% af heild), Hollendinga (3,8% af heild), Dana (3,1% af heild), Belga (2,8% af heild) og Íra (2,5% af heild). Samtals voru brottfarir tíu stærstu þjóðerna 76,8% af heild. 

 

Brottfarir frá janúar til nóvember

Eins og sjá má af töflu hér til hliðar eru brottfarir erlendra farþega það sem af er ári 33% fleiri en í fyrra. Þegar horft er til brottfara síðasta hálfa árið má hins vegar sjá að fjöldinn hefur meira en fjórfaldast milli ára en brottfarir mældust um 591 þúsund talsins á tímabilinu júní til nóvember 2021 en um 135 þúsund árið 2020. Í samanburði við árið 2019 þá voru brottfarir síðasta hálfa árið um helmingur af því sem þær mældust á sama tímabili árið 2019.

Brottfarir Íslendinga

Brottfarir Íslendinga í nóvember voru tæplega 33 þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær rétt innan við tvö þúsund. Brottfarir Íslendinga frá áramótum eru um 186 þúsund eða um 47% fleiri en á sama tímabili í fyrra.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má í töflunni hér að neðan og frekari upplýsingar sjá undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.