Fara í efni

63.700 brottfarir erlendra farþega í ágúst

Mynd: Forvöð í Jökulsárgljúfrum.
Mynd: Forvöð í Jökulsárgljúfrum.

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 63.700 í nýliðnum ágúst samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða 74,7% færri en í ágúst í fyrra, þegar þær voru um 251 þúsund talsins. Þjóðverjar voru fjömennastir í ágúst eða um 16% brottfara og fækkaði þeim um helming milli ára.

Frá áramótum hafa um 451 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 67,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega tæpar 1,4 milljón talsins.

 

 

 

Ástæður fyrir fækkun erlendra gesta til landsins
síðastliðna mánuði ættu að vera öllum ljósar.
Allt frá því áhrifa Covid faraldursins fór að gæta
hefur orðið hrun í fjölda brottfara eins og sjá má
af töflu hér til hliðar. Þannig var samdrátturinn
milli ára um 53% í mars, um 99% í apríl og maí,
97% í júní, 80% í júlí og 75% í ágúst.

 

 

 

 

Ferðamenn eftir þjóðernum í ágúst

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í ágúst tilkomnar vegna Þjóðverja en brottfarir þeirra voru tæplega 11 þúsund eða um helmingi færri en í ágúst í fyrra. Í öðru sæti voru brottfarir Pólverja, tæpar níu þúsund talsins eða álíka margar og í fyrra. Í þriðja sæti voru brottfarir Ítala, tæpar átta þúsund talsins eða 42,4% færri en í fyrra. Samtals voru brottfarir Þjóðverja, Pólverja og Ítala 42,6% brottfara erlenda farþega í ágúst.

Þar á eftir fylgdu brottfarir Dana (7,7%), Breta (7,4%), Frakka (6,7%), Hollendinga (5,9%), Spánverja (5,3%), Belga (4,2%) og Svisslendinga (3,5%). Samtals voru brottfarir tíu stærsta þjóðerna 83,3%.

 

 

Ferðir Íslendinga utan

Um 7.900 Íslendingar fóru utan í ágúst eða 83,7% færri en í ágúst 2019. Frá áramótum (janúar-ágúst) hafa um 116 þúsund
Íslendingar farið utan en um er að ræða 300 þúsund færri brottfarir en á sama tímabili í fyrra.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.