Fara í efni

4.600 brottfarir erlendra farþega í mars

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 4.600 í nýliðnum marsmánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia, eða 94,2% færri en í mars 2020, þegar brottfarir voru um 80 þúsund talsins. Frá áramótum hafa tæplega tólf þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er 96,4% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega um 334 þúsund.

Langflestar brottfarir í mars má rekja til Pólverja eða ríflega fjórðung (28%). Um er að ræða sjöunda mánuðinn í röð þar sem fækkunin nemur yfir 90% milli ára.

Brottfarir Íslendinga 

Brottfarir Íslendinga í mars voru um 3.100 talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um 15.700 talsins. Fækkunin nemur 80,1% milli ára. Brottfarir Íslendinga frá áramótum eru um 11.600 eða 86,9% færri en á sama tímabili í fyrra.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.