Fara í efni

272 þúsund erlendir ferðamenn í júlí

Ferðamenn júlí 2017Um 272 þúsund erlendir ferðamenn* fóru frá landinu í júlí síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 35 þúsund fleiri en í júlí á síðasta ári. Aukningin nemur 15,2% milli ára.

Um er að ræða svipaða hlutfallslega aukningu milli ára og í maímánuði (17,5%) og júnímánuði (18,9%) en mun minni en mældist í janúar (75,3%), febrúar (47,3%), mars (44,9%) og apríl (61,9%). 

Frá áramótum hafa um 1,2 milljónir komið til landsins sem er um þriðjungs aukning frá sama tímabili árinu áður.

Bandaríkjamenn tæpur þriðjungur

12 fjölmennustu þjóðerninBandaríkjamenn voru um 29%í júlí eða um 33% fleiri en í júlí í fyrra. Þjóðverjar voru næstfjölmennastir, um 25 þúsund talsins eða álíka margir og í júlí árið 2016 og á eftir fylgdu Bretar, um 16 þúsund eða 9% færri en í júlí árið 2016. Þar á eftir fylgdu síðan Frakkar (5,6% af heild), Kanadamenn (5,1%), Kínverjar (3,5%), Danir (3,2%), Svíar (3,2%), Pólverjar (3,2%), Spánverjar (3,0%), Norðmenn (2,4%) og Svisslendingar (2,4%).

15 þjóðerni bætast við

Þjóðernum í brottfarartalningum var fjölgað úr 18 í 33 í júní síðastliðnum. Þjóðernin sem bættust við eru Austurríkismenn, Ástralir, Belgar, Hong Kong búar, Indverjar, Ísraelar, Írar, Ný-Sjálendingar, Singapúr-búar, S-Kóreumenn og Tævanar. Ástralir og Ný-Sjálendingar eru nú ennfremur taldir sérstaklega og þá undir sama hatti en hið sama má segja um Eista,
Letta og Litháa. Niðurstöður má sjá í töflunni hér að neðan.

Ferðamenn eftir markaðssvæðumTæp þreföldun á fimm ára tímabili

Fjöldi ferðamanna hefur næstum þrefaldast á tímabilinu janúar til júlí á fimm ára tímabili, þ.e. frá árinu 2013. Þannig hefur fjöldi N-Ameríkana meira en þrefaldast, Mið- og S-Evrópubúa nærri tvöfaldast, fjöldi Breta meira en tvöfaldast og fjöldi þeirra sem koma frá löndum sem flokkast undir annað meira en þrefaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað í mun minna mæli á tímabilinu 2013-2017 eða um nærri þriðjung.

Breytt samsetning

Samsetning ferðamannaHlutfallsleg samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2013 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar. Bandaríkjamenn voru 31,9% af heild árið 2017 sem er mun hærra hlutfall en á árunum 2013-2016. Hlutdeild Breta var í kringum 19% á árunum 2014-2016 en fer niður í 15,6% árið 2017. Norðurlandabúar voru 8,8% af heild árið 2017 en hlutdeild þeirra hefur minnkað jafnt og þétt síðustu ár. Hlutdeild Mið-og S-Evrópubúa hefur jafnframt minnkað lítilsháttar frá 2013 til 2017 en hefur að sama skapi hækkað hjá þeim sem falla undir annað.

 

Ferðir Íslendinga utan

Um 62 þúsund Íslendingar fóru utan í júlí eða 12,6% fleiri en í júlí 2016. Frá áramótum hafa um 351 þúsund Íslendingar farið utan eða 14,3% fleiri en á sama tímabili árið 2016.

*Nánari upplýsingar

Talning Ferðamálastofu er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu við brottför og vert er að hafa í huga með þessari aðferð ná talningarnar yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð, þ.m.t. þeirra erlendu ríkisborgara sem hér eru búsettir um lengri eða skemmri tíma. Tölurnar ber því að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Ferðamenn júlí 2017 - tafla