Fara í efni

221 þúsund erlendir ferðamenn í júní

Um 221 þúsund erlendir ferðamenn* fóru frá landinu í júní síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 35 þúsund fleiri en í júní á síðasta ári. Fjölgunin nemur 18,9% milli ára.

Um er að ræða svipaða hlutfallslega aukningu milli ára og í maímánuði (17,5%) en mun minni en mældist í janúar, febrúar, mars og apríl.

Frá áramótum hafa um 973 þúsund komið til landsins eða 39% fleiri en á tímabilinu janúar til júní 2016.

 

Bandaríkjamenn þriðjungur

Bandaríkjamenn voru um þriðjungur ferðamanna í júní eða um 30% fleiri en í júní í fyrra. Þjóðverjar komu þar á eftir og voru um 21 þúsund talsins eða um 24% fleiri en í júní árið 2016 og þar á eftir Bretar eða tæplega 14 þúsund eða 14% færri en í júní árið 2016. Þar á eftir fylgdu síðan Kanadamenn (5,7%), Frakkar (5,0%), Kínverjar (3,8%), Svíar (3,5%), Pólverjar (3,2%), Norðmenn (2,4%), Danir (2,3%), Hollendingar (2,1%) og Spánverjar (1,9%). 

14 þjóðerni bætast við

Þjóðernum í brottfarartalningum var fjölgað úr 18 í 32 í nýliðnum júnímánuði. Þjóðernin sem bættust við eru Austurríkismenn, Ástralir, Belgar, Hong Kong búar, Indverjar, Ísraelar, Írar, Ný-Sjálendingar, Singapúr-búar, S-Kóreumenn og Tævanar. Ástralir og Ný-Sjálendingar eru nú ennfremur taldir sérstaklega og þá undir sama hatti en hið sama má segja um Eista, Letta og Litháa. Sjá nánar í töflunni hér neðst á síðunni.

 

Meira en þreföldun ferðamanna á tímabilinu janúar-júní á fimm ára tímabili

Fjöldi ferðamanna hefur meira en þrefaldast á tímabilinu janúar til júní á fimm ára tímabili, þ.e. frá árinu 2013. Þannig hefur fjöldi N-Ameríkana fimmfaldast, Mið- og S-Evrópubúa nærri þrefaldast, fjöldi Breta meira en tvöfaldast og fjöldi þeirra sem koma frá löndum sem flokkast undir annað fjórfaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað í mun minna mæli á tímabilinu 2013-2017 eða um þriðjung.

 

Breytt samsetning

Hlutfallsleg samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2013 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar og sýnir hlutfallslega samsetningu eftir markaðssvæðum á tímabilinu janúar til júní. Bandaríkjamenn voru 31,1% af heild árið 2017 sem er mun hærra hlutfall en á árunum 2013-2016. Hlutdeild Breta var í kringum 23% á árunum 2014-2016 en fer niður í 18,2% árið 2017. Norðurlandabúar voru 8,5% af heild árið 2017 en hlutdeild þeirra hefur minnkað jafnt og þétt síðustu ár. Hlutdeild Mið-og S-Evrópubúa hefur jafnframt minnkað lítilsháttar frá 2013 til 2017 en hefur hækkað hjá þeim sem falla undir annað.

Ferðir Íslendinga utan

Um 62 þúsund Íslendingar fóru utan í júní eða 7,2% færri en í júní 2016. Frá áramótum hafa um 289 þúsund Íslendingar farið utan eða 14,9% fleiri en á sama tímabili árið 2016.

*Nánari upplýsingar

Talning Ferðamálastofu er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu við brottför og vert er að hafa í huga með þeirri aðferðafræði sem beitt er ná talningarnar yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð, þ.m.t. þeirra erlendu ríkisborgara sem hér eru búsettir um lengri eða skemmri tíma. Tölurnar ber því að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.