Fara í efni

1,7% fækkun milli ára í mars

1,7% fækkun milli ára í mars

Brottfarir erlendra farþega* frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 170 þúsund í nýliðnum mars eða um þrjú þúsund færri en í mars árið 2018, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkun milli ára nemur 1,7%.

Bandaríkjamenn og Bretar voru fjölmennastir í mars eða 47% brottfara en Bandaríkjamönnum fækkaði um 9,1% milli ára og Bretum um 1,7%. Þjóðverjum sem voru í þriðja sæti fjölgaði hins vegar um 16,7%. Þá fjölgaði Ítölum um 25,5%.

Frá áramótum hafa 458 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll sem er 4,7% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.


Fjölmennustu þjóðernin

Af einstaka þjóðernum voru flestar brottfarir í mars í ár tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta, sem fyrr segir. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir, um 38 þúsund talsins, og brottfarir Breta komu þar á eftir en þær mældust um 34.500. Samtals voru brottfarir þessara tveggja þjóða 42,6% af heildarbrottförum.

Þjóðverjar voru þriðju í röðinni hvað fjölda brottfara varðar í mars en brottfarir þeirra voru 10.700 talsins (6,3% af heild) og fjölgaði þeim um 16,7% milli ára. Brottfarir Frakka voru í fjórða sæti, um 7.600 talsins (4,5% af heild) og voru þeir 7,7 færri en árinu áður.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Pólverja (3,6% af heild), Kanadamanna (3,5 % af heild), Ítala (3,1% af heild), Kínverja (2,6% af heild), Spánverja (2,6% af heild) og Dana (2,1% af heild).

 

Ferðir Íslendinga utan

Um 43 þúsund Íslendingar fóru utan í mars í ár eða 23,8% færri en í mars 2018. Frá áramótum hafa 124 þúsund Íslendingar farið utan eða 8,5% færri en á sama tímabili í fyrra. Páskaferðir Íslendinga utan voru inni í talningunum í mars í fyrra og hafa því einhver á áhrif á þá fækkun sem orðið hefur.

*Nánari upplýsingar

Talning Ferðamálastofu og Isavia er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu áður en komið er inn á brottfararsvæði og tölurnar ber að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Talningarnar ná yfir alla sem fara í gegnum hefðbundna öryggisleit.
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inni í þessum tölum. Niðurstöður úr könnnum sem Isavia hefur látið framkvæma meðal brottfararfarþega benda til að um 93% brottfararfarþega yfir vetrartímann séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og gisti eina eða fleiri nætur. Þeir sem koma inn í landið án þess apð gista hafa mælst um 2% sjálftengifarþegar hafa mælst á bilinu 2-4% og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma á bilinu 1,4-3,4%. Sjá nánar
Ferðamálastofa áréttar að fjöldi brottfara erlendra farþega gefur vísbendingu um þróun í komum ferðamanna til landsins. Til að álykta um breytingar á umsvifum í ferðaþjónustu þarf að líta til fleiri mælikvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferðamanna.
Nánari skiptingu á milli þjóðerna má sjá í töflunni að neðan og frekari upplýsingar eru undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.