Fara í efni

153 þúsund ferðamenn í apríl - 605 þúsund frá áramótum

ferðamenn aprílTæplega 153 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í apríl síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 58.600 fleiri en í apríl á síðasta ári. Aukningin nemur 61,8% milli ára. Aukningin í apríl var 29,4% 2013-2014, 20,9% 2014-15 og 32,5% 2015-2016.

Frá áramótum hafa um 605 þúsund erlendir ferðamenn farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 55,7% aukning miðað við sama tímabil á undan. Aukningin á tímabilinu janúar til apríl var 24,1% 2013-2014, 30,2% 2014-2015 og 40,1% 2015-2016.

  

Bandaríkjamenn og Bretar um helmingur ferðamanna

Bandaríkjamenn og Bretar voru 44,4 ferðamanna í apríl en Bandaríkjamenn voru 26,3% og Bretar 18,1% af heildarfjölda. Tíu þjóðerni sem röðuðust þar á eftir voru eftirfarandi:

  • Þjóðverjar 6,1%
  • Frakkar 4,4%
  • Kanadamenn 3,9%
  • Danir 3,3%
  • Svíar 3,0%
  • Norðmenn 3,0%
  • Pólverjar 2,7,%
  • Hollendingar 2,4%
  • Kínverjar 2,3%
  • Spánverjar 2,1%

Bandaríkjamenn og Bretar voru 48,8% ferðamanna frá áramótum en Bretar voru 25,1% og Bandaríkjamenn 23,7% af heildarfjölda. Tíu þjóðerni sem röðuðust þar á eftir voru:

  • Þjóðverjar 5,2%
  • Kínverjar 4,0%
  • Frakkar 3,9%
  • Kanadamenn 3,7%
  • Hollendingar 2,2%
  • Pólverjar 2,2%
  • Danir 2,1%
  • Svíar 2,0%
  • Spánverjar 1,9%
  • Norðmenn 1,9%


Meira en þreföldun ferðamanna á tímabilinu janúar-apríl á fimm ára tímabili

Ferðamenn hafa meira en þrefaldast á tímabilinu janúar til apríl á fimm ára tímabili. Þannig hafa N-Ameríkanar sexfaldast, Mið- og S-Evrópubúar nærri fjórfaldast, Bretar nærri þrefaldast og ferðamenn frá löndum sem flokkast undir annað fimmfaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað í mun minna mæli eða um 33,6% á tímabilinu 2013-2017.

 

 

Breytt samsetning

Hlutfallsleg samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2013 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar. Bandaríkjamenn voru 27,4% af heild árið 2017 sem er mun hærra hlutfall en á árunum 2013-2016. Hlutdeild Breta var í kringum þriðjung á árunum 2013-2016 en fer niður í 25,1% árið 2017. Norðurlandabúar voru 6,8% af heild árið 2017 en hlutdeild þeirra hefur lækkað jafnt og þétt síðustu ár. Hlutdeild Mið-og S-Evrópubúa hefur verið svipuð á tímabilinu 2013-2017 en hefur hækkað hjá þeim sem falla undir annað.

Ferðir Íslendinga utan

Um 62 þúsund Íslendingar fóru utan í apríl eða 59,9% fleiri en í apríl 2016. Frá áramótum hafa um 175 þúsund Íslendingar farið utan eða 27,1% fleiri en á sama tímabili árið 2016.

Nánari upplýsingar

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.