Fara í efni

148 þúsund ferðamenn í febrúar

Ferðamenn í ferúar 2013-2017Um 148 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í febrúar síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 47.600 fleiri en í febrúar á síðasta ári. Aukningin nemur 47,3% milli ára.

Ferðamönnum fjölgaði jafnframt mikið milli ára, árin á undan en aukningin var 31,2% frá 2013-2014, 34,4% frá 2014-2015 og 42,9% frá 2015-2016.

Frá áramótum hafa 284 þúsund erlendir ferðamenn farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 59,5% aukning miðað við sama tímabil í fyrra.

 

Bretar og Bandaríkjamenn um helmingur ferðamanna í febrúar

12 fjölmennustu þjóðerninBretar og Bandaríkjamenn voru um helmingur ferðamanna en Bretar voru 31,9% og Bandaríkjamenn 19,5% af heildarfjölda. Tíu þjóðerni sem röðuðust þar á eftir voru eftirfarandi:

  • Kínverjar 5,7%
  • Frakkar 4,5%
  • Þjóðverjar 4,4%
  • Kanadamenn 3,3%
  • Hollendingar 2,1%
  • Pólverjar 1,9%
  • Japanir 1,8%
  • Spánverjar 1,7%
  • Danir 1,6%
  • Norðmenn 1,4%

Bandaríkjamönnum fjölgaði langmest milli ára í febrúar eða um 12.574 og var aukningin 77,0%. Bretum fjölgaði um 4.198 í febrúar, sem er 9,7% aukning frá því í fyrra, Kínverjum fjölgaði um 3.954 sem var nærri tvöföldun frá því í fyrra, Kanadamönnum um 3.318 sem er rúmlega þreföldun frá því í fyrra, Frökkum um 3.042 sem er nærri tvöföldun frá því í fyrra og Þjóðverjum um 2.809 sem er 77,3% aukning frá því fyrra. Þessar sex þjóðir báru uppi 62,8% af aukningu ferðamanna milli ára í febrúar.

Ferðamenn eftir markaðssvæðumNærri fjórföldun á fimm ára tímabili 

Ferðamenn hafa nærri fjórfaldast í febrúar á fimm ára tímabili. Þannig hafa N-Ameríkanar nærri sexfaldast, Mið- og S-Evrópubúar meira en þrefaldast, Bretar þrefaldast og ferðamenn frá löndum sem flokkast undir annað sexfaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minna eða um 47,3% á tímabilinu 2013-2017.

 

 

Hlutdeild Breta lækkar 2017

Hlutfall ferðamanan eftir markaðssvæðumHlutfallsleg samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2013 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar. Í nýliðnum febrúar voru Norðurlandabúar 4,9% ferðamanna en hlutdeild þeirra af heild hefur lækkað síðustu ár. Hlutdeild N-Ameríkana hefur hins vegar aukist frá 2013 og hið sama má segja um hlutdeild þeirra sem falla undir annað. Bretar hafa verið stærsta markaðssvæðið síðastliðin fimm ár en á árinu 2017 var hlutdeild Breta 31,9%, mun lægri en á árunum 2013-2016 þegar hún var í kringum 40%. Hlutdeild Mið- og S-Evrópubúa hefur verið á líku róli á tímabilinu 2013 til 2017.

 

Ferðir Íslendinga utan

Um 35 þúsund Íslendingar fóru utan í febrúar eða 6.283 fleiri en í febrúar árið 2016. Um er að ræða 21,8% fleiri brottfarir en árið 2016.

Nánari upplýsingar

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

 Ferðamenn í febrúar 2017