Fara í efni

124.800 ferðamenn í desember

Ferðamenn í desemberTæplega 125 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í desember síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 54 þúsund fleiri en í desember á síðasta ári. Aukningin nemur 76,1% milli ára. Fjöldi ferðamanna hefur ríflega sexfaldast í desember frá árinu 2010 en aldrei hefur mælst jafn mikil aukning milli ára og nú.

Þess ber að geta að tölur ná yfir allar brottfarir frá landinu. Því má gera ráð fyrir að frávik hvað varðar hlutdeild ferðamanna til landsins séu meiri í desember en aðra mánuði ársins vegna ferðalaga erlendra ríkisborgara búsettra hérlendis í tengslum við jólaleyfi.

 

Bandaríkjamenn og Bretar tæplega helmingur ferðamanna

10 fjölmennustu þjóðerninUm 73% ferðamanna í nýliðnum desember voru af tíu þjóðernum. Bretar voru fjölmennastir eða 26,8% af heildarfjölda en fast á eftir fylgdu Bandaríkjamenn sem voru 19,6% af heildarfjölda. Þar á eftir komu Kínverjar (4,5%), Pólverjar (3,6%), Þjóðverjar (3,2%), Frakkar (3,1%), Kanadamenn (3,0%), Spánverjar (2,1%), Japanir (1,9%) og Hollendingar (1,8%).

Bandaríkjamönnum fjölgaði langmest milli ára í desember eða um 12.216 manns og voru þeir tvöfalt fleiri í ár en í fyrra. Bretum fjölgaði um 9.114 ferðamenn í desember sem er 37,5% aukning frá því í fyrra og Kínverjum um 4.662 sem er nærri tvöföldun frá því í fyrra. Þessar þrjár þjóðir báru uppi 48,2% af aukningu ferðamanna milli ára í desember.

Ferðamenn eftir markaðssvæðumFjöldi N-Ameríkana hefur ellefu-faldast og Breta nífaldast frá 2010

Ferðamenn hafa meira en sexfaldast í desember frá 2010. Þegar litið er til fjölda ferðamanna eftir markaðssvæðum á tímabilinu 2010 til 2016 má sjá verulega aukningu frá flestum markaðssvæðum. Þannig hefur fjöldi ferðamanna frá N-Ameríku ellefu-faldast á tímabilinu, fjöldi Breta nífaldast, fjöldi ferðamanna frá löndum sem lenda í hópnum ,,annað“ meira en áttfaldast og fjöldi ferðamanna frá Mið- og S-Evrópu nærri fimmfaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minna eða um 37,8% á tímabilinu 2010-2016.

Hlutfall Breta hækkar en Norðurlandabúa lækkar

Hlutfall ferðamanan eftir markaðssvæðumHlutfallsleg samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2010 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar. Í nýliðnum desember voru Norðurlandabúar 4,9% ferðamanna. Hlutfall þeirra af heild hefur lækkað verulega síðustu ár en það var 23,4% árið 2010. Hlutdeild Breta var hins vegar 26,8% og hlutfall N-Ameríkana 22,6% í desember síðastliðnum og hefur hún farið vaxandi frá 2010. Hlutdeild Mið- og S-Evrópubúa og þeirra sem falla undir annað hefur verið jafnari á tímabilinu 2010 til 2016.

Ferðir Íslendinga utan

Um 41 þúsund Íslendingar fóru utan í desember eða 8.374 fleiri en í desember árið 2015. Um er að ræða 25,4% fleiri brottfarir en árið 2015.

Nánari upplýsingar

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.