Fara í efni

123 þúsund ferðamenn í júlí

júli 2013Um 123 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í nýliðnum júlí eða 11.400 fleiri en í júlí í fyrra. Um er að ræða 10,2% aukningu milli ára. Þegar litið er til fjölda ferðamanna í júlí á því tólf ára tímabili (2002-2013) sem Ferðamálastofa hefur haldið úti talningum má sjá umtalsverða fjölgun erlendra ferðamanna. Þeim hefur fjölgað úr 46 þúsund árið 2002 í um 123 þúsund árið 2013 eða um 77 þúsund ferðamenn. Aukningin milli ára hefur verið að jafnaði 9,7% en sveiflur milli ára hafa hins vegar verið talsvert miklar. Þessa þróun má nánar sjá á myndunum hér til hliðar, annars vegar fjölda ferðamanna hvert ár og hins vegar hlutfallslega breytingu á milli ára.

Bandaríkjamenn og Þjóðverjar fjölmennastir

þjóðerniAf einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í júlí frá Bandaríkjunum (14,9%) og Þýskalandi (12,2%). Þar á eftir komu Frakkar (8,2%), Bretar (8,1%), Danir (7,2%), Norðmenn (5,1%), Svíar (4,3%), Hollendingar (3,4%) og Svisslendingar (3,4%). Samtals voru þessar níu þjóðir um tveir þriðju (66,8%) ferðamanna í júlí.

Af einstaka þjóðum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Frökkum og Bretum mest milli ára í júlí. Þannig komu 3.492 fleiri Bandaríkjamenn í júlí ár, 1.729 fleiri Frakkar og 1.448 fleiri Bretar. Færri Svíar, Þjóðverjar og Norðmenn komu hins vegar í júlí í ár en í fyrra.

Auking frá öllum mörkuðum nema Norðurlöndum

Þegar aukning milli ára er skoðuð eftir einstaka markaðssvæðum má sjá 22,3% aukningu N-Ameríkana, 17,0% aukningu Breta, 5,9% aukningu Mið- og S-Evrópubúa og 19,4% aukningu þeirra sem koma frá löndum sem flokkuð eru undir annað. Norðurlandabúum fækkar hins vegar um 4,4%.

Um 435 þúsund ferðamenn frá áramótum

Frá áramótum hafa 434.930 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 78 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 21,8% milli ára. 42,6% fleiri Bretar hafa heimsótt landið, 27,7% fleiri N-Ameríkanar, 17,8% fleiri Mið- og S-Evrópubúar og 25,3% fleiri ferðamenn frá löndum sem flokkast undir ,,annað“. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minna eða um 4,9%.

Utanferðir Íslendinga

Um 33 þúsund Íslendingar fóru utan í júlí eða 1.700 færri en í júlí í fyrra. Frá áramótum hafa um 203 þúsund Íslendingar farið utan, um 2.200 færri en á sama tímabili árið 2012. Fækkunin nemur 1,1% milli ára.

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Nánari upplýsingar veitir Oddný Þóra Óladóttir, rannsóknastjóri oddny@ferdamalastofa.is

Ferðamenn í júlí 2013