Fara í efni

110 þúsund ferðamenn í júní

Ferðamenn í júníUm 110.600 erlendir ferðamenn fóru frá landinu í júní síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða um 20.700 fleiri en í júní í fyrra. Aukningin nemur 23,1% milli ára. Vart þarf að taka fram að aldrei hafa jafn margir ferðamenn verið hér í júní og nú.

Bandaríkjamenn fjölmennir

10 fjölmennustuBandaríkjamenn voru líkt og í maí fjölmennastir eða 19,2% af heildarfjölda ferðamanna í júní en næstfjölmennastir voru Þjóðverjar eða 15,6% af heild. Þar á eftir komu Bretar (8,6%), Frakkar (6,4%) og Norðmenn (5,7%). Samtals voru 10 fjölmennustu þjóðernin með 74% af heildarfjölda ferðamanna.

Af einstaka þjóðernum fjölgaði Bandaríkjamönnum, Bretum, Kandamönnum, Þjóðverjum og Kínverjum mest á milli ára. Þessar fimm þjóðir báru að stórum hluta uppi aukninguna í júní milli ára eða um 54% af heildaraukningu.

Þróun á tímabilinu 2002-2014

Ferðamenn eftir markaðssvæðumFerðamenn voru ríflega þrisvar sinnum fleiri í maí í ár en þeir mældust í sama mánuði árið 2002. Fjölgun hefur að segja má verið öll ár, að undanskilinni smávægilegri fækkun 2009 og 2010. Fjölgunin hefur þó verið mismikil, mest 25% á milli áranna 2006 og 2007 og þrívegis yfir 20%.

Þegar einstök markaðssvæði eru skoðuð má sjá að frá árinu 2010 er góð fjölgun frá öllum svæðum. Bandaríkjamönnum hefur fjölgað mest en þeir hafa nærri þrefaldast. Bretar og þeir sem taldir eru sameiginlega undir „Annað“ hafa meira en tvöfaldast. Nokkru minni fjölgun er frá Mið- og Suður Evrópu en þó 85%. Norðurlandabúum hefur fjölgað um 43% frá árinu 2010.

402 þúsund ferðamenn frá áramótum

Það sem af er ári hafa 401.772 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 90 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Um er að ræða 29% aukningu ferðamanna milli ára frá áramótum í samanburði við sama tímabil í fyrra. Veruleg aukning hefur verið frá flestum mörkuðum; N-Ameríkönum og Bretum hefur fjölgað um 41,%, Mið- og S-Evrópubúum um 17%, og ferðamönnum frá öðrum mörkuðum um 38%. Norðurlandabúum hefur hins vegar ekki fjölgað í sama mæli eða um 10%.

Ferðir Íslendinga utan

Um 41 þúsund Íslendingar fóru utan í júní síðastliðnum, um 4.900 fleiri en í júní árið 2013. Frá áramótum hafa 184.820 Íslendingar farið utan eða 8,5% fleiri en á sama tímabili árið 2013 en þá fóru 170.267 utan.

Nánari upplýsingar

Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

tafla yfir fjölda ferðamanna