Fara í efni

108 þúsund brottfarir erlendra farþega í september

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson
Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 108 þúsund í nýliðnum septembermánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Horfa þarf nokkur ár aftur í tímann til að sjá álíka fjölda brottfara erlendra farþega í septembermánuði.

Bandaríkjamenn og Þjóðverjar voru fjölmennastir í september eða um 41%.

Frá áramótum hafa um 445 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er 3,6% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega um 461 þúsund. Borið saman við 2019 er fækkunin 71%.

 

 

Stærstu þjóðernin

Langflestar brottfarir í september má rekja til Bandaríkjamanna eða ríflega fjórðung (27,8%). Þjóðverjar voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru um 13.900 talsins eða 12,9% af heild. Í þriðja sæti voru brottfarir Breta, um 6,1% af heild og Frakka, um 6% af heild.

Þar á eftir fylgdu síðan brottfarir Ítala (5,6% af heild), Pólverja (5,4% af heild), Dana (3,9% af heild), Spánverja (3,9% af heild), Hollendinga (3,4% af heild) og Belga (2,7% af heild). Samtals voru brottfarir tíu stærstu þjóðerna 77,2% af heild.

 

Brottfarir janúar til september

Eins og sjá má af töflu hér til hiðar eru brottfarir erlendra farþega það sem af er ári 4% færri í ár en í fyrra. Þegar horft er til brottfara síðasta hálfa árið má hins vegar sjá að fjöldinn hefur meira en þrefaldast milli ára en brottfarir mældust um 433 þúsund talsins á tímabilinu apríl til september 2021 en um 127 þúsund árið 2020. Í töflunni má jafnframt sjá samanburð við brottfarir árið 2019.

Brottfarir Íslendinga

Brottfarir Íslendinga í september voru um 29 þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um 5 þúsund. Brottfarir Íslendinga frá áramótum eru um 113 þúsund eða 6,6% færri en á sama tímabili í fyrra.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má í töflunni hér að neðan og frekari upplýsingar sjá undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.