Fara í efni

103 þúsund brottfarir erlendra farþega í október

103 þúsund brottfarir erlendra farþega í október

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 103 þúsund í nýliðnum októbermánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Horfa þarf allt til árins 2015 til að sjá álíka fjölda brottfara erlendra farþega í októbermánuði.

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða tæplega þriðjungur.

Frá áramótum hafa um 548 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi sem er 17,3% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru brottfarir erlendra farþega um 467 þúsund. Borið saman við 2019 er fækkunin 68%.

 

 

Stærstu þjóðernin

Langflestar brottfarir í október má rekja til Bandaríkjamanna eða tæplega þriðjung (31,7%). Bretar  voru í öðru sæti en brottfarir þeirra voru um 10.200 talsins eða 9,9% af heild. Í þriðja sæti voru brottfarir Þjóðverja, um 9,1% af heild og í því fjórða Danir, um 5,3% af heild.

Þar á eftir fylgdu brottfarir Pólverja (5,2% af heild), Spánverja (4,3% af heild), Ítala (4,3% af heild), Frakka (3,6% af heild), Hollendinga (3,6% af heild) og Kanadabúa (1,9% af heild). Samtals voru brottfarir tíu stærstu þjóðerna 79,5% af heild.

 

 

Brottfarir janúar til október

Eins og sjá má af töflu hér til hiðar eru brottfarir erlendra farþega það sem af er ári 17% fleiri í ár en í fyrra. Þegar horft er til brottfara síðasta hálfa árið má hins vegar sjá að fjöldinn hefur fjórfaldast milli ára en brottfarir mældust um 530 þúsund talsins á tímabilinu maí til október 2021 en um 132 þúsund árið 2020. Í samanburði við árið 2019 þá voru brottfarir síðasta hálfa árið 46% af því sem þær mældust árið 2019.

 

Brottfarir Íslendinga

Brottfarir Íslendinga í október voru tæplega 40 þúsund talsins en í sama mánuði í fyrra voru þær um tæplega fjögur þúsund. Brottfarir Íslendinga frá áramótum eru um 152 þúsund eða um fimmtungi fleiri en á sama tímabili í fyrra.

Nánari upplýsingar

Nánari skiptingu á milli þjóðerna má í töflunni hér að neðan og frekari upplýsingar sjá undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Niðurstöður um brottfarartalningar má jafnframt nálgast í Mælaborði ferðaþjónustunnar undir liðnum Farþegar.