Fara í efni

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi 2026

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi verður haldin fimmtudaginn 15. október næstkomandi og í ár liggur leiðin á Norðurhjarasvæðið.

Uppskeruhátíðin er árlegur vettvangur samstarfsfyrirtækja Markaðsstofu Norðurlands til að hittast, efla tengsl og kynnast betur því fjölbreytta starfi sem unnið er í ferðaþjónustu um allan landshlutann.

Dagskrá hátíðarinnar stendur yfir frá morgni til kvölds. Yfir daginn heimsækjum við fyrirtæki og áhugaverða staði og kynnumst þannig starfseminni á svæðinu. Deginum lýkur síðan með hátíðarkvöldverði og skemmtun.

Uppskeruhátíðin er kjörið tækifæri til að kynnast fólkinu á bak við ferðaþjónustuna á Norðurlandi, mynda ný tengsl og verða virkur hluti af öflugu samstarfsneti greinarinnar. Við hvetjum fyrirtæki til að bjóða starfsfólki sínu með og gefa því tækifæri til að taka þátt í þessum skemmtilega degi með okkur.

Takið daginn frá! Nánari dagskrá og upplýsingar um skráningu verða kynntar síðar. 

Nánar um uppskeruhátíðína