Öryggisáætlanir
Samkvæmt lögum um Ferðamálastofu nr. 96/2018 ber hverjum þeim sem hyggst framkvæma skipulagðar ferðir innan íslensks yfirráðasvæðis að hafa öryggisáætlanir fyrir hverja tegund ferða. Söluaðilar sem selja ferðir sem framkvæmdar eru af öðrum verða að ganga úr skugga um að öryggisáætlanir séu til staðar fyrir þær ferðir.
Ferðamálastofa hefur eftirlit með því að öryggisáætlanir séu til staðar og heimild til að kalla eftir þeim en ekki þarf að senda þær til Ferðamálastofu í tengslum við leyfisumsókn. Sjá umfjöllun hér að neðan um eftirlit með öryggisáætlunum.
Öryggisáætlun samanstendur af fjórum þáttum sem eru áhættumat, verklagsreglur, viðbragðsáætlun og atvikaskýrsla. Hér fyrir neðan má finna lýsingu á hverjum þætti fyrir sig ásamt eyðublöðum sem frjálst er að nota við gerð öryggisáætlana. Hafa ber í huga að öryggisáætlanir þarfnast reglulegrar endurskoðunar og uppfærslu, leggja þarf áherslu á að draga lærdóm af reynslunni.
Áhættumat
Áhættumat felur í sér mat á hugsanlegri hættu í tengslum við framkvæmd ferða. Lagt er mat á hvaða hættur eru fyrir hendi í hverri tegund ferða og hversu líklegt er að þær leiði til slysa eða óhappa, hvar og hvernig þau geta átt sér stað og hverjir gætu orðið fyrir þeim.
- Eyðublað til gerðar áhættumats (ítarleg útgáfa - Excel)
Verklagsreglur
Verklagsreglur taka mið af áhættumati og eru hluti af forvörnum, þeim er ætlað að koma í veg fyrir, lágmarka eða útiloka þær hættur sem koma fram í áhættumati. Í verklagsreglum skulu meðal annars koma fram upplýsingar til viðskiptavina hvað varðar öryggisatriði og önnur hagnýt atriði, menntun, þjálfun og reynsla starfsmanna, fjöldi viðskiptavina á hvern starfsmann, upplýsingar um búnað og fjarskipti o.fl.
Viðbragðsáætlun
Viðbragðsáætlun tekur mið af áhættumati og felur í sér hvernig bregðast skuli við óhöppum og slysum. Viðbragðsáætlun getur verið ein eða fleiri og er ætlað að lágmarka afleiðingar slysa og óhappa. Mikilvægt er að viðbragðsáætlunin sé einföld og skýr.
Verklagsreglur og viðbragðsáætlanir þurfa að vera aðgengilegar starfsmönnum í öllum ferðum.
Atvikaskýrsla
Atvikaskýrsla er ítarleg lýsing á atviki, óhappi eða slysi. Meðal annars skal koma fram til hvaða aðgerða var gripið, hverjir lentu í atvikinu ásamt upplýsingum um vitni eða sjónarvotta o.fl. Atvikaskýrslur eru ómissandi þegar öryggisáætlanir eru endurskoðaðar með það að leiðarljósi að læra af þeim atvikum sem upp hafa komið.
- Eyðublað til gerðar atvikaskýrslu (PDF – útfyllanlegt í tölvu eða til útprentunar)
Ábendingar og hagnýt atriði
- Gerð öryggisáætlana er hluti af því að veita gæðaþjónustu.
- Öryggisáætlanir skulu vera skriflegar, bæði á íslensku og ensku.
- Mikilvægt er að skrá ÖLL atvik (óhöpp og slys) sem upp koma og einnig þarf að skrá næstum því slys.
- Söluaðilar ferða verða að ganga úr skugga um að sá sem framkvæmir ferð sé með öryggisáætlun.
- Beiðni söluaðila um staðfestingu á öryggisáætlun - dæmi (word)
- Beiðni söluaðila um staðfestingu á öryggisáætlun - dæmi (PDF)
- Hægt er að sækja aðstoð við gerð öryggisáætlana til ýmissa verkfræðistofa og ráðgjafafyrirtækja.
- Endurmeta þarf öryggisáætlanir reglulega (amk. einu sinni á ári og ávallt í kjölfar hvers konar slysa/óhappa) og gera nýjar þegar nýjar tegundir ferða eru skipulagðar.
- Á vefsíðu Vakans - gæða- og umhverfisvottunar ferðaþjónustunnar - er að finna ítarlegar leiðbeiningar um gerð öryggisáætlana (sjá hér).
Gátlistar vegna gerðar og yfirferðar öryggisáætlana
Hér fyrir neðan má finna leiðbeinandi gátlista sem hafa má til hliðsjónar við gerð og yfirferð öryggisáætlana. Í gátlistunum er að finna almenn atriði sem eiga við um flestar tegundir afþreyingar. Gátlistarnir eru bæði í word og PDF útgáfum.
- Flúðasiglingar
- Gönguferðir í dreifbýli og óbyggðum
- Gönguferðir um jökla og fjöll
- Hellaskoðun
- Hestaferðir
- Hópferðabílar
- Jeppa, vélsleða og fjórhjólaferðir
- Kajakferðir
- Köfun og yfirborðsköfun / snorkl
- Náttúruskoðun
- Reiðhjólaferðir
- Skot- og stangveiði
- Söfn, setur og sýningar
Eftirlit með öryggisáætlunum
Samkvæmt lögum nr. 96/2018 hefur Ferðamálastofa eftirlit með því að öryggisáætlanir séu til staðar, uppfylli viðeigandi kröfur laga og séu uppfærðar eftir þörfum. Ferðamálastofu er heimilt að kalla eftir öryggisáætlunum hvenær sem er.
Allir sem framkvæma skipulagðar ferðir á íslensku yfirráðasvæði geta lent í handahófskenndu úrtaki. Í slíkum tilvikum óskar Ferðamálastofa eftir því að öryggisáætlanir fyrirtækisins séu sendar inn til skoðunar. Að auki getur Ferðamálastofa kallað eftir öryggisáætlunum í kjölfar ábendinga sem berast til stofnunarinnar og í kjölfar atvika eða slysa. Í síðarnefnda tilfellinu þarf að fylgja með útfyllt atvikaskýrsla.
Þegar Ferðamálastofa kallar eftir öryggisáætlunum er tilkynning þess efnis send í gegnum island.is ásamt nánari upplýsingum um skilafrest og framkvæmd skoðunar. Við yfirferð öryggisáætlana hjá Ferðamálastofu eru gátlistar, sem sjá má hér að ofan, hafðir til hliðsjónar.
Ferðamálastofa hefur heimild, skv. áðurnefndum lögum, til að leggja dagsektir á fyrirtæki sem uppfylla ekki skilyrði laganna. Dagsektir geta numið frá 50 þús. kr. til 500 þús kr. á dag.
Fyrir nánari upplýsingar má senda tölvupóst á netfangið oryggi@ferdamalastofa.is