Kynningarfundur um áfangastaðaáætlanir
| Nánari upplýsingar | |
|---|---|
| Titill | Kynningarfundur um áfangastaðaáætlanir |
| Lýsing |
Margt var um manninn á Hótel Sögu í 15. nóvember 2018 þegar áfangastaðaáætlanir voru kynntar. Verkefnið er það umfangsmesta sem unnið hefur verið á grundvelli Vegvísis í ferðaþjónustu. Heilmikið samtal og samráðEins og fram kom í máli verkefnisstjóra áfangastaðaáætlana hefur heilmikið samtal og samráð átt sér stað inni á svæðunum, en yfir 1500 manns víða um land hafa komið að vinnunni á fjölmörgum fundum og kynningum. Áfangastaðaáætlanir birtast nú hver af annarri og er þeim safnað jafnóðum saman hér á heimasíðu Ferðamálastofu, þar sem áhugasamir munu geta nálgast áfangastaðaáætlanir allra svæða. Snertifletir við Landsáætlun um innviði fjölmargirÁ eftir verkefnisstjórum áfangastaðaáætlana tók til máls Dagný Arnarsdóttir, sérfræðingur hjá umhverfis- og auðlindaráðuneyti, en hún fjallaði um snertifleti áfangastaðaáætlana við Landsáætlun um innviði. Ýmis sértæk atriði í áfangastaðaáætlunum hafa snertiflöt við Landsáætlun. Í Áfangastaðaáætlun Vestfjarða er til dæmis á meðal viðfangsgefna landtaka skemmtiferðaskipa í friðlöndum, en það er einnig viðfangsefni Landsáætlunar. Það sama má segja um heildarskipulag svæðis við Dynjanda, Látrabjarg og Hornstrandir. Þá nefndi Dagný að áfangastaðaáætlanir væru mikilvægur hluti af endurskoðun Landsáætlunar. Brýnt að ganga lengra í forgangsröðun verkefnaNýkjörinn formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, Aldís Hafsteinsdóttir, steig síðast á svið og fjallaði um hvernig áfangastaðaáætlanir myndu nýtast í framtíðinni. Hún lofaði þá miklu vinnu sem hafði verið unnin á þessum vettvangi en sagðist helst sakna þess að svæði hafi ekki gengið lengra í að setjast niður með sveitarfélögum og forgangsraða verkefnum eftir því hvað þætti allra brýnast að fara í á hverju svæði. Það er ljóst að þetta er eitt af næstu verkefnum inni á flestum svæðum; að forgangsraða þeim fjölmörgu verkefnum sem komið hafa upp í þessari vinnu. Hér að neðan má sjá upptökur og fyrirlestra frá fundinum
Myndir frá fundinum eru á Facebook-síðu Ferðamálastofu. |
| Flokkun | |
|---|---|
| Flokkur | Stefnumótun og skipulag |
| Útgáfuár | 2018 |
| Útgefandi | Ferðamálastofa |
| Leitarorð | áfangastaðaáætlun, áfangastaðaáætanir, skipulag, svæðisskipulag |

Ávarp og setning fundar – Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri
Áfangastaðaáætlun Vesturlands – Margrét Björk Björnsdóttir
Áfangastaðaáætlun Austurlands – María Hjálmarsdóttir
Áfangastaðaáætlun Norðurlands – Björn. H. Reynisson
Áfangastaðaáætlun Höfuðborgarsvæðis – Ágúst Elvar Bjarnason
Áfangastaðaáætlun Reykjaness – Þuríður H. Aradóttir Braun
Áfangastaðaáætlun Suðurlands – Anna Valgerður Sigurðardóttir og Laufey Guðmundsdóttir
Áfangastaðaáætlun Vestfjarða – Magnea Garðarsdóttir
Snertifletir Landsáætlunar um innviði við áfangastaðaáætlanir – Dagný Arnarsdóttir, sérfræðingur hjá umhverfis- og auðlindaráðuneyti
Hvernig munu áfangastaðaáætlanir nýtast – Aldís Hafsteindóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga