Fara í efni

World Travel Market - skráning

wtm 11
wtm 11

Íslandsstofa auglýsir eftir þátttöku á World Travel Market ferðakaupstefnunni í London dagana 5.-8. nóvember.

World Travel Market er ein stærsta ferðakaupstefna í heimi og er haldin árlega. Sýningin verður opin í fjóra daga fyrir ferðaþjónustufyrirtæki og tengda aðila (trade) en seinni tveir dagarnir eru einnig opnir almenningi. Sýningin fer fram í ExCel sýningarhöllinni í London líkt og undanfarin ár.

Íslandsstofa sér um að skipuleggja básinn og býður þar m.a. upp á fundaaðstöðu þar sem þátttakendum gefst kostur á að hitta viðskiptavini. Plássið á básnum er takmarkað og gildir því reglan fyrstur kemur - fyrstur fær. Áhugasamir eru því hvattir til að skrá sig hið fyrsta. Síðasti skráningardagur er 12. september. 

Skráningareyðublað World Travel Market 2012 (Word)

Umsóknir skulu sendar til Heru Brá Gunnarsdóttur, hera@islandsstofa.is
með cc. á Aðalstein Sverrisson adalsteinn@islandsstofa.is

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu World Travel Market