Fara í efni

Vond veðurspá - Höldum ferðafólki upplýstu

Gular veðurviðvaranir taka gildi uppúr miðjum degi víða um land á morgun, 13. nóvember. Spáð er versnandi veðri og um kvöldið verða viðvaranirnar orðnar appelsínugular á Norðurlandi vestra og eystra. Spáð er vondu veðri fram á laugardag. Spáð er hvassviðri og snjókomu eða skafrenningi, einkum á fjallvegum. Reikna má með litlu skyggni og erfiðum aksturskilyrðum. Líkur eru á vegalokunum.


Á laugardaginn er spáð afar miklu hvassviðri á Suðausturlandi. Möguleiki á vegalokunum og ekkert ferðaveður verður á þessum slóðum. Aðstæður ættu að batna uppúr miðjum degi.

Gott er að benda ferðafólki á sýna aðgát og að fylgjast með veðurspá og aðstæðum á síðu Safetravel og benda á að ekkert ferðaveður verði á Norðurlandi á föstudagskvöld og á Suðausturlandi fyrri hluta laugardags.

Meðfylgjandi er viðvörun sem við biðjum ykkur um að prenta út, hengja á áberandi stað og upplýsa ykkar gesti um veðrið.
Smellið hér fyrir skjal til úprentunar.