Fara í efni

Vinnustofa í gerð öryggisáætlana

Jöklaferð á Suðurlandi. Mynd: Björgvin Hilmarsson
Jöklaferð á Suðurlandi. Mynd: Björgvin Hilmarsson

Ferðamálastofa býður upp á hagnýta vinnustofu í gerð öryggisáætlana fyrir ferðaþjónustuaðila. Vinnustofan er ætluð þeim sem starfa við skipulagningu og framkvæmd ferða, hvort sem um er að ræða lítil eða stór fyrirtæki, og vilja styrkja öryggi starfseminnar í samræmi við gildandi reglur og leiðbeiningar. Vinnustofan er blanda af fyrirlestrum og verkefnavinnu þar sem þátttakendur vinna að eigin öryggisáætlunum með leiðsögn sérfræðinga.

 

Hagnýtar upplýsingar

  • Dagsetning: 8. apríl
  • Staðsetning: Akureyri
  • Tími: 10:00 – 17:00
  • Lengd: 6 klukkustundir
  • Hámarksfjöldi: 12 þátttakendur (fyrstur kemur, fyrstur fær)
  • Verð: 15.400 kr. á þátttakanda


Fyrir hverja er vinnustofan?

Vinnustofan er sérstaklega ætluð:

  • ferðaþjónustuaðilum sem bera ábyrgð á öryggi ferðamanna
  • stjórnendum og rekstraraðilum
  • leiðsögumönnum og skipuleggjendum ferða
  • þeim sem vinna að gerð eða endurskoðun öryggisáætlana

 

Námsmarkmið

Markmið vinnustofunnar er að þátttakendur:

  • öðlist skýran skilning á kröfum um öryggisáætlanir í ferðaþjónustu
  • geti greint helstu áhættuþætti í eigin starfsemi
  • tileinki sér aðferðir til að setja fram verklagsreglur og viðbragðsáætlanir
  • skilji mikilvægi öryggismenningar
  • geti unnið áfram að eigin öryggisáætlun

 

Hæfni sem þátttakendur öðlast

Að lokinni vinnustofu geta þátttakendur:

  • framkvæmt grunnáhættumat fyrir eigin starfsemi
  • sett upp hagnýtar verklagsreglur
  • skilgreint viðbrögð við slysum og neyðartilvikum
  • innleitt eða bætt atvikaskráningu
  • unnið markvisst með leiðbeiningar og eyðublöð Ferðamálastofu

 

Helstu viðfangsefni

  • Öryggisáætlanir almennt
  • Leiðbeiningar og dæmi
  • Öryggismenning
  • Áhættumat
  • Verklagsreglur
  • Viðbragðsáætlanir
  • Atvikaskráning
  • Samantekt og næstu skref

Vinnustofan fer þannig fram að hún byggir á blandaðri kennslu þar sem stuttir og markvissir fyrirlestrar fléttast saman við verklega verkefnavinnu. Unnið er með raunveruleg dæmi úr ferðaþjónustu til að tryggja hagnýtt gildi, og þátttakendur vinna jafnframt í eigin gögnum og öryggisáætlunum á meðan á vinnustofunni stendur. Þátttakendur fá leiðsögn frá sérfræðingum í öryggismálum sem styðja við ferlið og veita faglega endurgjöf.

 

Styrkir hjá starfsmenntunarsjóðum

Þátttakendur fá viðurkenningarskjal um þátttöku að lokinni vinnustofu. Námskeiðið uppfyllir almenn skilyrði starfsmenntunarsjóða stéttarfélaga og eru þátttakendur hvattir til að kanna styrkjamöguleika hjá sínu stéttarfélagi.

 

Hæfniviðmið ef sótt er um styrk

Þekking

  • Uppbygging öryggisáætlana
  • Hlutverk áhættumats, verklagsreglna og viðbragðsáætlana
Færni
  • Greining áhættu og mótvægisaðgerðir
  • Uppsetning öryggisáætlunar fyrir eigin starfsemi
Hæfni
  • Beiting öryggisstjórnunar í daglegu starfi
  • Þátttaka í þróun og umbótum öryggisáætlana

 

Mikilvægt: Þátttakendur eru beðnir um að koma með fartölvu eða spjaldtölvu.

Skráning

Vegna takmarkaðs fjölda þátttakenda er mikilvægt að skrá sig tímanlega.

Skráning fer fram hér:

Vinnustofa í gerð öryggisáætlana. – Fylltu út eyðublað

Af hverju að taka þátt?
  • Uppfylltu kröfur um öryggisáætlanir
  • Auktu fagmennsku og öryggi í rekstri
  • Fáðu verkfæri sem nýtast strax í starfi
  • Lærðu af raunverulegum dæmum

Ekki missa af þessu tækifæri til að efla öryggi í þinni starfsemi.
Við hlökkum til að sjá þig á Akureyri.