Fara í efni

Vinna gegn svartri atvinnustarfsemi

Strönd
Strönd

Fulltrúar Starfsgreinasambands Íslands, Samtaka ferðaþjónustunnar, Ferðaþjónustu bænda, embættis ríkisskattstjóra  og Vinnumálastofnunar skrifuðu í gær undir yfirlýsingu um samstarf til að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi í ferðaþjónustugreinum. Undirskriftin fór fram í tengslum við tveggja daga ráðstefnu um þetta efni sem nú stendur yfir á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit.

Það voru þau Kistján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins, Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF, Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda, Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar og Jóhann Ásgrímsson, fulltrúi Ríkisskattstjóra sem undirrituðu yfirlýsinguna.

Vísað er sérstaklega til starfsemi  í veitinga- og gistihúsum, greiðasölu og hliðstæðri starfsemi en markmið samstarfsins er að hvarvetna sé fylgt ákvæðum kjarasamninga í ferðaþjónustugreinum og að leikreglur á vinnumarkaði séu virtar.

Markmiðinu hyggjast samstarfsaðilar ná með markvissu vinnustaðaeftirliti, gegnsæi og miðlun upplýsigna milli aðila. Samstarfsaðilarnir hvetja vinnuveitendur og starfsfólk til þess að virða reglur um vinnustaðaskírteini þar sem þau auðvelda m.a. gegnsæi í því sambandi að um lögmæta, skráða atvinnustarfsemi sé að ræða á viðkomandi vinnustað.