Fara í efni

Vinalegasta viðmótið - gefðu bros í sumar

vinalegasta broskarl
vinalegasta broskarl

Ferðamálastofa hefur í samstarfi við við Ferðamálasamtök Íslands, Ferðaþjónustu bænda, Íslandsstofu, Samtök ferðaþjónustunnar og Markaðsstofur landshlutanna hrint af stað sumarherferð sem ber yfirskriftina Vinalegasta viðmótið.

Hugmyndin að baki herferðinni er að verðlauna það sem vel er gert í þjónustu á ferðaþjónustustöðum út um allt land og vekja sérstaka athygli á þeim stöðum með jákvæðum hætti. Markmiðið er einnig að herferðin sé hvatning til fólks í þjónustustörfum til að sýna jákvætt og vinalegt viðmót og leggja sig fram um að veita góða þjónustu í hvívetna.

Ferðamenn og aðrir viðskiptavinir geta látið vita af góðri þjónustu eða vinalegu viðmóti með því að hringja í þáttinn Virka morgna á Rás 2 eða skrifa ábendingar á Facebook-síðu átaksins – en einnig verður hægt að „verðlauna“ gott viðmót á stöðunum sjálfum með því að „gefa bros“.  Sérstakir broslímmiðar munu liggja frammi hjá fjölda þjónustuaðila og þá má líma á þar til gert veggspjald til að láta í ljósi ánægju sína með áþreifanlegum hætti. Þeir staðir sem safna flestum brosmiðum á veggspjaldið sitt ættu að vera í góðum málum með viðmót gagnvart
viðskiptavinum.

Bros samnefnari fyrir góða þjónustu
Oft er erfitt að meta hvað felst í góðri þjónustu og við gerum mismunandi kröfur eftir stöðum. Í allri þjónustu skiptir þó viðmót starfsfólks höfuðmáli og því má segja að brosið sé samnefnari  fyrir góða þjónustu og ánægjuleg viðskipti. Við viljum hvetja fólk til að beita því óspart.

Post-it miðar – „Gefðu bros“
Partur af herferðinni eru „post-it“ límmiðar með broskalli og textanum „Gefðu bros“. Þeim verður dreift á ferðaþjónustustaði út um allt land, ásamt meðfylgjandi veggspjaldi. Þeir eru hugsaðir  sem nokkurs konar áþreifanleg umbun eða „þjórfé“ fyrir vinalegt viðmót eða góða þjónustu. Með þessu köllum við fram þátttöku viðskiptavinarins og ferðamannanna sem eiga leið um landið og með táknrænum hætti geta viðskiptavinirnir látið ánægju sína í ljós með því að gefa bros á móti. Fólki er að sjálfsögðu velkomið að skrifa persónulega kveðju á post-it miðana, en það er ekki skilyrði.

Ferðaþjónstuaðilar eru hvattir til að setja veggspjaldið upp á góðum og áberandi stað og hafa broslímmiðana nálæga til að viðskiptavinir átti sig á út á hvað leikurinn gengur og við  náum að skapa skemmtilega stemningu kringum verkefnið.

Markmið
Markmiðið með átakinu í sumar er að gera starfsfólk fyrirtækja í ferðaþjónustu meðvitaðra um mikilvægi góðrar þjónustu, sýna fram á hvað mikið getur áunnist með litlum og einföldum atriðum (sbr. brosið) og ekki síst að fá ferðalanga og viðskiptavini til að sýna bæði þakklæti í verki (með því að brosa á móti) og umbuna fyrir góða þjónustu og gott viðmót.

Facebook
Sett verður upp sérstök Facebook-síða fyrir átakið (Vinalegasta viðmótið) þar sem fólk getur  sent inn jákvæðar reynslusögur og jafnvel gefið bros með táknrænum hætti. Facebook-síðan verður vöktuð og engu hleypt þar í gegn án samþykkis ritstjóra til að forðast að hún verðigrundvöllur neikvæðra skrifa.

Virkir morgnar á Rás 2
Í þættinum Virkum morgnum munu stjórnendur heyra í hlustendum sem geta hringt inn með jákvæðar sögur og tilnefnt staði. Þeir hlustendur sem hringja og þeir sem skrifa á Facebookvegginn fara í pott og geta átt von á að vinna spennandi vinninga frá ýmsum ferðaþjónustuaðilum.

Ef einhverjar spurningar vakna getið þið haft samband við Sigrúnu Hlín Sigurðardóttir þróunarstjóra  markaðsmála í síma 535 5502 eða með tölvupósti á sigrun@ferdamalastofa.is.

Share Your Story
Samhliða átakinu Vinalegasta viðmótið, mun Inspired by Iceland einnig standa að verkefninu Share Your Story, þar  sem erlendir ferðamenn verða hvattir til þess að skrifa sögu af ferðum sínum um landið og deila henni með öðrum á heimasíðu Inspried by Iceland. Valin verður besta innsenda sagan, og mun höfundur hennar hljóta flug til Íslands í verðlaun. Póstkortum verður dreift á hótelherbergi og vinsæla ferðamannastaði um landið til að kynna leikinn.

Upplýsingar í PDF-skjali