Fara í efni

Viðurkenningar til ferðaþjónustubænda

Fagrahlíð
Fagrahlíð

Á Uppskeruhátíð Ferðaþjónustu bænda fyrir skemmstu veitti skrifstofa Ferðaþjónustu bænda sex bæjum innan samtakanna viðurkenningar og er það í fyrsta sinn sem skrifstofan veitir verðlaun sem þessi. Viðurkenningar voru veittar í tveimur flokkum. 
 
Framúrskarandi ferðaþjónustubær
Í flokknum framúrskarandi ferðaþjónustubær 2011 fengu eftirfarandi viðurkenningu: Dísa og Óli í Skjaldarvík í Eyjafirði, Hulda og Gunnlaugur frá Gistihúsinu Egilsstöðum og Margrét og Jóhann Helgi í Vatnsholti við Villingaholtsvatn. Þessi viðurkenning er veitt fyrir einstaka frammistöðu á árinu og byggist matið á umsögnum gesta auk þess sem leitað var umsagna erlendra ferðaskrifstofa. Þá var einnnig horft til þeirra gæða sem staðurinn stendur fyrir að mati starfsfólks skrifstofunnar.

Hvatningarverðlaun
Í flokknum hvatningaverðlaun Ferðaþjónustu bænda fengu eftirfarandi viðurkenningu: Helena og Knútur í Friðheimum við Reykholt, Stella og Gísli í Heydal í Mjóafirði og Bergþóra í Fögruhlíð í Fljótshlíð. Hvatningaverðlaunin eru veitt félagsmönnum fyrir einstaka og vel útfærða hugmynd og frumkvæði að uppbyggingu í ferðaþjónustu sem miðar að skemmtilegri og innihaldsríkri upplifun fyrir gestina.
 
Í frétt frá Ferðaþjónustu bænda kemur fram að margir mjög frambærilegir staðir starfi innan samtakanna og er það von starfsfólks skrifstofunnar að þessar viðurkenningar sem ætlunin er að veita árlega verði öðrum hvatning til þess að vanda til verka og skara fram úr á sínu sviði – hver á sinn einstaka hátt.

Mynd:
Fagrahlíð í Fljótshlíð var meðal bæja sem fékk hvatningarverðlaun að þessu sinni.