Fara í efni

Viðskiptamenntun innan ferðaþjónustu efld

UndirritunBifrost
UndirritunBifrost

Viðskiptadeild Viðskiptaháskólans á Bifröst annars vegar og Ferðamáladeild á Hólum hins vegar hafa undirritað samkomulag um gagnkvæmt mat á námi. Markmið samkomulagsins er að efla viðskiptamenntun innan ferðaþjónustu.

Gagnkvæmt mat
Nemendur sem útskrifast frá Háskólanum á Hólum fá nám sitt metið sem 30 eininga áfanga til BS-prófs í viðskiptafræði með áherslu á ferðaþjónustu við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Þá fá nemendur, sem útskrifast með diploma í rekstrarfræðum við Viðskiptaháskólann á Bifröst, nám sitt metið sem 60 eininga áfanga til BA-prófs í ferðamálum við Hólaskóla.

Leiði til þekkingar og menntunar í hæsta gæðaflokki
Markmið samkomulagsins er sem fyrr segir að efla viðskiptamenntun innan ferðaþjónustu. Með þessu móti verði mætt mikilli og vaxandi þörf í landinu fyrir rannsóknir og háskólamenntun á þessu sviði, eins og segir í frétt frá skólunum. Aðilar samkomulagsins leggja áherslu á að samstarfið leiði til þekkingar og menntunar í hæsta gæðaflokki sem standist í einu og öllu alþjóðlegan samanburð. Skólarnir hafi enda með sér samstarf um rannsóknanám sem og rannsókna- og þróunarverkefni er lúta að rekstri ferðaþjónustufyrirtækja.

Mikilvægur áfangin fyrir nemendur
Forráðamenn beggja skóla lögðu á það áherslu við undirritun samkomulagsins að Hólum síðastliðinn laugardag að þessi tenging milli skólanna væri mikilvægur áfangi og opnaði nemendum skólanna nýjar og spennandi námsleiðir. Samkomulag Háskólans á Hólum og Viðskiptaháskólans á Bifröst nær einnig til fiskeldismenntunar.