Fara í efni

Vestfirðir í uppáhaldi hjá Lonely Planet

Vestfirðir
Vestfirðir

Vestfirðir eru meðal þeirra áfangastaða sem Lonely Planet feraútgáfan ráðleggur lesendum sínum að heimsækja á komandi ári. Rit útgáfunnar „Best in Travel 2011“ kom út nú í byrjun mánaðarins og eru Vestfirðir í 5. efsta sæti þeirra áfangastaða sem komast á topp tíu listann.

Vart þarf að fjölyrða um þá auglýsingu sem útnefning sem þessi hefur í för með sér. Milljónir fólks um allan heim nota útgáfur og vef Lonely Planet við skipulagningu ferða sinna þannig að segja má að Vestfirðir hafi komist ák ortið með eftirminnilegum hætti.

Nánar má fræðast um þá staði sem valdir voru á vef Lonely Planet