Fara í efni

Veruleg fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll það sem af er árinu

Flugstöð
Flugstöð

Í ágústmánuði síðastliðnum fóru 293.790 farþegar um Keflavíkurflugvöll og fjölgar þeim um 9% á milli ára. Þetta kemur fram í tölum frá flugvellinum.

Veruleg fjölgun farþega hefur átt sér stað á þessu ári og nemur tæpum 9% frá áramótum. Farþegar fyrstu átta mánuði þessa árs voru rúmlega 1,5 milljónir samanborið við 1,4 milljónir frá janúar til ágúst 2006. Nánari skiptingu má sjá í meðfylgjandi töflu.

 

  Ágúst 07. YTD Ágúst 06. YTD Mán. % breyting YTD % Breyting
Héðan: 126.484 658.084

120.244

610.229

5,19%

7,84%
Hingað: 124.408 671.446

115.085

613.258

8,10%

9,49%
Áfram: 5.586 28.511

2.426

11.867

130,26%

140,25%
Skipti. 37.312 187.953

31.806

184.755

17,31%

1,73%
  293.790 1.545.994

269.561

1.420.109

8,99%

8,86%