Fara í efni

Verkefni um viðburðaskipti styrkt af Norðurslóðaáætluninni

DanskirdagariStykkisholmi
DanskirdagariStykkisholmi

Tvö verkefni með íslenskum þátttakendum fengu brautargengi hjá Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins að þessu sinni og koma vestfirskir aðilar að þeim báðum.

Nýtt verkefni um viðburðaskipti
Eins greint hefur verið frá tekur Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða þátt í Evrópuverkefni um græna ferðamennsku og síðan eru Ísafjarðarbær og Héraðsnefnd Snæfellinga meðal þátttakenda í nýju verkefni um svokölluð viðburðaskipti sem ber nafnið "Usevenue". Auk þeirra taka þátt sveitarfélögin Storuman í Svíþjóð, Aviemore í Skotlandi og Hyrynsalmi í Finnlandi en þaðan er hugmyndin að verkefninu komin.

Viðburðum miðlað á milli svæða
Rúnar Óli Karlsson, ferðamálafulltrúi Ísafjarðarbæjar og Ásthildur Sturludóttir, atvinnuráðgjafi á Vesturlandi, segja ætlunina að miðla á milli svæðanna viðburðum sem reynst hafi vel á hverjum stað og fara í samstarf um þróun nýrra viðburða. Auk þess sé markmið verkefnisins m.a. að auka þekkingu á skipulagningu viðburða og byggja upp jákvæða ímynd íbúa af heimabyggðum sínum. Allar byggðirnar séu fremur smáar og þær eigi við svipuð vandamál að stríða, m.a. stutt ferðamannatímabil og fjarlægð frá markaði. Því fylgi að fjárfestingar séu illa nýttar stóran hluta ársins. Vinna megi gegn þessu með því að byggja upp viðburði á jaðartímum ferðaþjónustunnar.

Kynning og aðstoð við markaðssetningu og þróunarstarf
Fjölmargir árlegir viðburðir eru haldnir í Ísafjarðarbæ og á Snæfellsnesi og segjast Rúnar Óli og Ásthildur því telja að sveitarfélögin hafi upp á margt að bjóða í samstarfinu. Einnig sé fjöldi annarra viðburða sem eiga möguleika á að vaxa með réttri kynningu og skipulagningu. Ásthildur segir marga viðburði á svæðinu ekki þurfa svo mikla aukningu í aðsókn til að geta orðið sjálfbærir. "Þessu verkefni er ætlað að kynna viðburði, aðstoða heimamenn við markaðssetningu og þróunarstarf auk þess að efla núverandi viðburði í gegnum alþjóðlegt samstarfsnet. Þar kemur fjöldi fagmanna að með hugmyndir og miðla af sinni reynslu, enda sjá betur augu en auga".

5.000 manns í mýrafótbolta!
Áætlað er að verkefnið standi yfir í þrjú ár. Rúnar segir marga viðburði, víða um lönd, njóta vaxandi aðsóknar sem vafalítið þættu fremur geggjaðir að óreyndu, t.d. keppni í svokölluðum mýrafótbolta en um 5.000 þátttakendur komu til samstarfsbæjarins Hyrynsalmi til að iðka þessa sérstæðu íþrótt síðasta sumar. Nú er svo komið að mótið getur ekki tekið á móti fleiri þátttakendum og vilja Finnarnir gera það að keppnisröð víðar í Evrópu að sögn Rúnars.