Fara í efni

Verkefnasýning Norðurslóðaáætlunar

NorthernPeriphery
NorthernPeriphery

Í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu Norðurslóðaáætlunar 2007-2013, LAVA09, verða þau fjölbreyttu verkefni sem Ísland tekur þátt í kynnt í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Opnunartími er 10. nóv. kl. 12:00 ? 18:00 og 11. nóvember kl. 10:00 ? 18:00 og er sýningin öllum opin. Verkefnin eru m.a. á sviðum viðbragða við loftslagsbreytingum, menningartengdrar ferðaþjónustu, heilsugæslu, fiskeldis, verslunar, veiða, handverks, viðbragða við stórslysum, almenningssamgangna, nýtingu trjáviðar, endurnýjanlegra orkugjafa, öldrunarþjónustu, vegagerðar  og  skapandi greina. Á hluta sýningarinnar verður  ?lifandi vinnustofa? skapandi frumkvöðla sem leggja aukið gildi til valinna NPP verkefna.

Norðurslóðaáætlun 2007-2013 er ein af svæðaáætlunum Evrópusambandsins og meginmarkmið hennar er að efla atvinnu-, efnahags-, umhverfis- og félagslega framþróun svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.  Þema ráðstefnunnar er atvinnusköpun með áherslu á sóknarfæri sem felast í tengingu hefðbundinna atvinnugreina við skapandi greinar. Lögð er áhersla á virkt samstarf og tækifæri sem liggja í samstarfi hefðbundins og skapandi iðnaðar. Hvernig getur aðkoma  skapandi greina aukið framþróun og virði fyrirtækja og stofnanna.

Nánari upplýsingar (PDF)