Fara í efni

Vegvísir kynntur á Ferðamálaþingi

Allt stefnir í fjölmennt Ferðamálaþing á Akureyri þann 28. október. Vert er að ganga sem fyrst frá skráningu, ekki síst til að tryggja sértilboð á flugi og gistingu. Yfirskriftin í ár er Stefnumótun svæða – Stjórnun og skipulag (e. Strategic Planning for Tourism).

Vegvísir kynntur

Um eins dags ráðstefnu er að ræða og mun þingið hefjast með ávarpi ráðherra ferðamála, Ragnheiðar Elínar Árnadóttur. Þá má benda á að frá upphaflegri dagskrá hefur orðið sú breyting að kynning verður á hinum nýja Vegvísi í ferðaþjónustu.

Þekktir fyrirlesarar

Fyrirlesarar eru bæði erlendir og innlendir. Þannig má nefna að annar aðalfyrirlesara er S. Michael Hall frá Nýja-Sjálandi, einn virtasti fræðimaður á sviði ferðamálafræði í heiminum í dag. Annar erlendur fyrirlesari kemur frá Skotlandi, Thomas Riddell Graham, frá Visit Scotland.

Tilboð á flugi og gistingu

Ekkert skráningargjald er á þingið sjálft en um kvöldið er val um sameiginlegan kvöldverð og skemmtun á Hótel KEA sem greitt er fyrir (skráningarfrestur í kvöldskemmtun er til 20. október). Sértilboð er á flugi og gistingu í tengslum við þingið. Sjá nánar hér að neðan.

Dagskrá:

09:30 Skráning og afhending gagna
09:45

Setning Ferðamálaþings
-Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri

09:55 Ávarp ráðherra ferðamála
-Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
10:05 Vegvísir í ferðaþjónustu
-Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri
10:20 Kaffihlé
10:35 Tourism Destination Planning: A Realist Position in a Land of Make Believe 
-C. Michael Hall, prófessor við University of Canterbury á Nýja-Sjálandi
11:15 Nýtt verkfæri í skipulags- og stefnumótunarvinnu: Gagnagrunnur um kortlagningu auðlinda ferðaþjónustunnar
-Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu og Árni Geirsson frá Alta
11:35 Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu afhent
11:45 Pallborðsumræður
12:05 Matarhlé
13:00 Scotland’s National Tourism Development Framework
-Thomas Riddell Graham Director of  Partnerships, Visit Scotland 
13:40  Ferðaþjónusta og skipulag
-Pétur Ingi Haraldsson, Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu 
13:55  Stefnumótandi skipulagsgerð
-Matthildur Kr. Elmarsdóttir frá Alta 
14:10  Öryggi í skipulagi og áhættustýring svæða
-Böðvar Tómasson, fagstjóri Bruna- og öryggissviðs hjá EFLU
14:25  Gæðaáfangastaður Íslands 2015 - EDEN
- Afhending viðurkenninga
14:35  Kaffihlé
15:05  Hugleiðing 
-Sr. Hildur Eir Bolladóttir, sóknarprestur við Akureyrarkirkju
15:15  Stefnumótun-skipulag og hönnun í þjóðgarðinum á Þingvöllum.
-Einar Á. E. Sæmundsen, fræðslufulltrúi Þingvallaþjóðgarðs
15:30  Hvaða gögn eru til gagns...í svæðisbundinni stefnumótun í ferðaþjónustu? 
-Lilja B. Rögnvaldsdóttir, Rannsóknasetri HÍ á Húsavík
15:45  Er rétt gefið? - Sjónarhorn sveitarfélags
-Jón Óskar Pétursson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps
16:00  Áfangastaðurinn Akureyri - stefnumótun
-Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu
15:15  Ég er ALLS EKKI á móti ferðamönnum, en...
-Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti Húnaþings vestra
16:30  Pallborðsumræður
17:00  Þingi slitið
  Fundarstjóri: Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdstjóri Markaðsstofu Norðurlands.
   
  Kvölddagskrá (kr. 6.500-)
18:30 Fordrykkur á Hótel KEA í boði Akureyrarbæjar
19:30 Kvöldverður og skemmtidagskrá
  Veislustjóri: Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu

 

Skráning og verð

-Skráning á þingið, kaffiveitingar og hádegisverður, er án endurgjalds
-Sameiginlegur kvöldverður og skemmtun á Hótel KEA kr. 6.500.- (greitt á staðnum)
-Skráningarfrestur í kvöldskemmtun er til 20. október
-Sértilboð á hótelgistingu og flugi, sjá nánar á skráningarblaði

  • Skráning á Ferðamálaþing 2015 (skráningu er lokið en hægt að fylgjast með netútsendingu)

Netútsending

Þingið verður sent út beint á netinu:

https://global.gotomeeting.com/join/334686029

Menningarhúsið Hof