Fara í efni

Vefsvæði Ferðamálaáætlunar 2006-2015 opnað

Í samræmi við ákvörðun Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra frá síðastliðnu hausti, er nú unnin í fyrsta skipti samræmd ferðamálaáætlun fyrir Ísland, tímabilið 2006-2015. Vinnan er komin vel á stað og hefur verið opnað sérstakt vefsvæði fyrir verkefnið.

Vefurinn hefur tvíþætt hlutverk. Annars vegar á hann að þjóna upplýsinga- og kynningarhlutverki en hins vegar er hann sameiginlegt vinnusvæði þeirra sem koma að vinnslu ferðamálaáætlunarinnar.

Fyrsti fundur stýri- og samráðshópa
Í nóvember sl. skipaði samgönguráðherra stýrihóp til þess að leiða vinnu við gerð áætlunarinnar. Magnús Oddsson ferðamálastjóri var skipaður formaður hópsins, en aðrir í honum eru Helga Haraldsdóttir, skrifstofustjóri í samgönguráðuneyti og Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF). Með stýrihópnum starfar Jón Gunnar Borgþórsson, en hann var ráðinn verkefnisstjóri frá áramótum 2003/2004. Stýrihópnum ber að hafa samráð við sérstakan vettvang hagsmunaaðila og leita þar m.a. sjónarmiða og tillagna um það sem betur má fara. Í dag verður haldinn fyrsti sameiginlegi fundur stýri- og samráðshópa verkefnisins að Hótel Sögu.

Fara á vefsvæði Ferðamálaáætlunar 2006-2015