Fara í efni

Varað við hellaskoðun á Reykjanesi

Varað við hellaskoðun á Reykjanesi

Í gær voru gerðar gasmælingar við Eldvörpin á Reykjanesskaga. Slíkar mælingar eru nú gerðar vikulega sem hluti af viðbragði vegna landriss við Þorbjörn. Breytinga hefur orðið vart og vilja Veðurstofan og Almannavarnadeild Lögreglunnar vara við hellaskoðun á svæðinu en mælingar sýndu lífshættuleg gildi á koltvísýringi og súrefnisleysi í helli.

Margir hellar eru á svæðinu, en hellirinn sem um ræðir er við bílstæði þar sem vinsælt er að leggja upp í skoðun á Eldvörpunum.