Fara í efni

VAKINN - kynningarfundir í dag og morgun

Vakinn lógó
Vakinn lógó

Í dag og á morgun verða þrír kynningarfundir á VAKANUM, hinu nýja gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar. Í dag er fundað á Stykkishólmi og á morgun á Selfossi og í Reykjavík.

Metnaðarfullt verkefni fyrir alla ferðaþjónustu
Eins og fram hefur komið þá á VAKINN sér talsaverða sögu og en unnið hefur verið að þróun þessa metnaðarfulla gæðakerfis frá haustinu 2008. Eru miklar vonir bundnar við að VAKINN muni efla gæði og öryggi í ferðaþjónustu á Íslandi með handleiðslu og stuðningi, ásamt því að byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja.

Unnið í náinni samvinnu
VAKINN er afsprengi þróunarverkefnis sem iðnaðarráðuneytið fól Ferðamálastofu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að vinna að. Verkefnið er unnið í náinni samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtök Íslands og þannig hefur skapast breið samstaða innan ferðaþjónustunnar um þennan mikilvæga málaflokk.

www.vakinn.is og www.facebook.com/vakinn.is

Kynningarfundir um allt land
Hér að neðan eru upplýsingar um hvern fund um sig:

13. mars Stykkishólmur 14-16:30 - Hótel Stykkishólmur - Nánari upplýsingar og skráning
14. mars Selfoss 9-11:30 - Hótel Selfoss - Nánari upplýsingar og skráning
14. mars Reykjavík 14-16:30 - Reykjavík Hótel Natura - Nánari upplýsingar og skráning

Dagskrá kynningarfunda:


- Ávinningur af VAKANUM
- Umhverfiskerfi VAKANS
- Gerð öryggisáætlana
- Áhættumat í ferðaþjónustu
- Rekstur og stjórnun
- Stuðningur og fylgigögn VAKANS

Tökum höndum saman og eflum gæði í íslenskri ferðaþjónustu!