Fara í efni

VAKINN - fræðsla um gerð öryggisáætlana

Vakinn lógó
Vakinn lógó

Gerð öryggisáætlana er meðal þeirra atriða sem kveðið er á um í VAKANUM, hinu nýja gæða og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar. Til að leiðbeina væntanlegum þátttakendum um gerð þeirra verður haldinn fræðslufundur með fjarfundasniði föstudaginn 19. október kl. 13:00.

Tugir ferðaþjónustaðila hafa þegar sótt fjarnámskeið um innleiðingu á VAKANUM og samhliða síðasta námskeiði var einnig boðið upp á sérstaka fræðslu um gerð öryggisáætlana. Hún hlaut góðar undirtektir og því var ákveðið að bjóða upp á fleiri fundi þar sem öryggisáætlanirnar eru teknar sérstaklega fyrir.

Skráning til kl. 16:00  þann 18. október
Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir námskeiðunum. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að þátttakendur skrá sig á netfangið erla.sig@nmi.is. Gefa skal upp nafn, netfang, heiti fyrirtækis og símanúmer. Þátttakendur fá senda til baka slóð í tölvupósti sem þeir nota til að skrá sig inn á fundinn. Skráningu á fundinn um gerð öryggisáætlana lýkur kl. 16:00 fimmtudaginn 18. október.

Fræðslan er hugsuð jafnt fyrir þá sem þegar hafa sótt um þátttöku í VAKANUM og eru að huga að innleiðingu og þá sem hyggja á umsókn. Hámarks fjöldi þátttakenda á hverjum fundi eru 15 manns, bætt verður við fundum eftir þörfum.

Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Erla Sigurðardóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, erla.sig@nmi, sími 522 9491. Fólki er velkomið að hafa samband við Erlu vegna aðstoðar við aðra þætti í VAKANUM og eins ef umræddir tímar henta ekki viðkomandi og verður þá unnið í að setja upp fleiri námskeið.

Nánar um VAKANN á www.vakinn.is