Fara í efni

VAKINN - fjarnámskeið um gerð öryggisáætlana og almenna innleiðingu VAKANS

Vakinn lógó
Vakinn lógó

Skráning stendur yfir á næstu fjarnámskeið um gerð öryggisáætlana og innleiðingu á VAKANUM, hinu nýja gæða- og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar. Næstu námskeið verða haldin 6. desember.

Um er að ræða tvenns konar námskeið:

  • Almenn fræðsla um innleiðingu VAKANS kl. 11-12
  • Fræðsla um öryggisáætlanir kl. 13-14:30.

Skráning til kl. 16 þann 4. desember
Nýsköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir námskeiðunum. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að þátttakendur skrá sig á netfangið erla.sig@nmi.is. Gefa skal upp nafn, netfang, heiti fyrirtækis og símanúmer. Þátttakendur fá senda til baka slóð í tölvupósti sem þeir nota til að skrá sig inn á fundinn. Skráningarfrestur er til kl. 16 þann 4. desember. Mikilvægt að fólk taki fram á hvort námskeiðið það er að skrá sig.

Fræðslan er hugsuð jafnt fyrir þá sem þegar hafa sótt um þátttöku í VAKANUM og eru að huga að innleiðingu og þá sem hyggja á umsókn. Lágmarksfjöldi til að námskeið sé haldið er 5 manns, hámarks fjöldi þátttakenda á hverjum fundi eru 15 manns en bætt verður við fundum eftir þörfum.

Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Erla Sigurðardóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, erla.sig@nmi, sími 522 9491. Fólki er velkomið að hafa samband við Erlu vegna aðstoðar við aðra þætti í VAKANUM og eins ef umræddir tímar henta ekki viðkomandi og verður þá unnið í að setja upp fleiri námskeið.

Nánar um VAKANN á www.vakinn.is