Fara í efni

VAKINN er orðinn að veruleika

Vakinn lógó
Vakinn lógó

Merkur áfangi náðist í dag í sögu íslenskrar ferðaþjónustu þegar gæða- og umhverfiskerfið VAKINN var tekið í notkun. Þróuð hafa verið gæðaviðmið fyrir allar greinar ferðaþjónustu en í fjölmörg ár hefur verið rætt um nauðsyn á slíku kerfi. Með VAKANUM fá ferðaþjónustuaðilar í hendur tæki sem getur verið þeim verkfæri og leiðsögn í átt til betri þjónustu og aukins öryggis.

Verkfæri ferðaþjónustuaðila
Markmiðið með VAKANUM er að efla gæði og öryggi í ferðaþjónustu á Íslandi með handleiðslu og stuðningi, ásamt því byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja. Þannig er kerfið fyrst og fremst verkfæri til að aðstoða þátttakendur við að auka gæði og öryggi. Þetta er gert með hjálpargögnum og leiðsögn. Ferðaþjónustuaðilar eru ekki skyldugir að taka þátt í VAKANUM en styrkleikar kerfisins eiga einmitt að felast í því að kostir þess séu öllum augljósir.
Kerfið er tvískipt, þ.e. stjörnuflokkun fyrir gististaði og úttekt á ferðaþjónustu annarri en gistingu. Þá fylgir VAKANUM einnig umhverfiskerfi sem aðilar hafa val um að taka þátt í, en það kostar ekkert aukalega.

Víðtæk samstaða
VAKINN er afsprengi þróunarverkefnis sem iðnaðarráðuneytið fól Ferðamálastofu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands að vinna að haustið 2008. Verkefnið er unnið í náinni samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtök Íslands og þannig hefur skapast breið samstaða innan greinarinnar um þennan mikilvæga málaflokk. Þá hafa fjölmörg ferðaþjónustufyrirtæki lagt lóð sitt á vogarskálina í undirbúningsferlinu. Byggt er á kerfi frá Nýja-Sjálandi er kallast Qualmark og þykir hafa heppnast afar vel.

Því eru gæðin mikilvæg?
En af hverju eru gæða- og umhverfismál svona mikilvæg fyrir íslenska ferðaþjónustu og hvaða hag hafa ferðaþjónustufyrirtæki hafa af því að taka þátt? Nokkuð augljós ástæða er samkeppnissjónarmið, þ.e. Ísland á sem ferðamannaland í harðri samkeppni við mörg önnur lönd. Það er síður en svo sjálfgefið að ferðamenn leggi leið sýna hingað til lands því valkostirnir eru svo sannarlega margir. VAKINN er þannig markaðstæki, bæði fyrir Ísland sem áfangastað og hvert það fyrirtæki sem tekur þátt. En af hverju að tengja umhverfismál við gæðamálin? Kannanir meðal ferðamanna hafa árum saman fært okkur heim sanninn um að meginaðdráttarafl Íslands er hin stórfenglega náttúra. Hún er gulleggið okkar sem við þurfum því að varðveita og skila áfram ósködduðu til komandi kynslóða

Einfalt og kostnaði stillt í hóf
Áhersla hefur verið lögð á að hafa kerfið eins einfalt og kostur er og sníða það þannig að það henti öllum. Þá hefur þátttökugjaldi einnig verið stillt í hóf, en það ræðst af umfangi rekstrar viðkomandi fyrirtækis.

Vefur VAKANS, vakinn.is
Á fundinum í dag var nýr vefur VAKANS opnaður en slóðin er www.vakinn.is Þar er að finna allar upplýsingar um kerfið, umsóknarform, hjálpargögn og fleira.

Kynningarfundir um allt land
Á næstu dögum verður VAKINN kynntur á fundum víða um land. Þeir verða sem hér segir:

2. mars  Ísafjörður 13-15:30 - Hótel Ísafjörður
5. mars  Akureyri 9-11:30 - Hótel KEA
5. mars Varmahlíð 14-16:30 - Hótel Varmahlíð
6. mars  Egilsstaðir 9-11:30 - Hótel Hérað
7. mars  Höfn í Hornafirði 9-11:30 - Hótel Höfn
7 .mars  Kirkjub.klaustur 15-17:30 - Hótel Klaustur
13. mars Stykkishólmur 14-16:30 - Hótel Stykkishólmur
14. mars Selfoss 9-11:30 - Hótel Selfoss
14. mars Reykjavík 14-16:30 - Grand Hótel

Dagskrá kynningarfunda:


- Ávinningur af VAKANUM
- Umhverfiskerfi VAKANS
- Gerð öryggisáætlana
- Áhættumat í ferðaþjónustu
- Rekstur og stjórnun
- Stuðningur og fylgigögn VAKANS